Tuesday, October 23, 2007

Það rignir og rignir og rignir og rignir og rignir aðeins meira og svo pínulítið meira og svo aðein meira...! Var ég búin að segja það að það sé rigning??!

Anyway síðasta helgi var sú massívasta siðan Pakkhúsið gaf upp öndina hérna um daginn! Alla vega þá var vörutalning í Byko sem var klikkunn og ég er ekki að djóka að vera telja vörur heilan dag það getur ekki endað öðruvísi en ekki vel! Eftir svona 4 tíma er ekki sjálfsagt mál að geta talið...það verður erfitt að telja upp að 10 og þetta er ekki djók! Síðustu 2 tímarnir fóru svo í það að finna allar mögulegar leiðir á því hvernig ætti að beila á því að fara með Guggu og co á ball í Þorlákshöfn (af öllum stöðum) í reiðhöll með Klaufunum (sem er frekar vel við eigandi þegar Klaufarnir eiga í hlut!) og vá hvað ég fann að ég þurfti bara á þ´vi að hakda að fara út á djammið!! Og djö hvað var geeeeðveeeeeikt gaman!! Verðugir kandídatar til að spila í að spila í stúdentaveislunni! Eða á ég bara að halda mig við Duran Duran og Goerge Michael??

En vá hvað svona staðir eins og reiðhallir sem eru svona stórar og mikið pláss og svona henta vel fyrir dansiböll! Eins og þarna í Þorlákshöfn væri minnsta mál í heimi að halda goooott sálarball! Ohh núna langar mér á sálarball!!

Nýja platan með Sniglabandinu Vestur er komin í búðir en hún inniheldur meðal annars lagið Brtney og hið stór sketilega lag Selfoss er sem presenterar Selfoss eins og það sé e-ð mikið að gerast þar! hmm

Nýja tónlekaplatan með SSSól er komin í búðir en hún heitir Síðata vetrardag því tónleikarnir voru einmitt síðasta vetrardag! Sniðugt!

Á jólagjafalistanum mínum er meðal annars nýja safnplatan með Nýdönsk sem er að mínu mati ein besta hljósveit íslenskrar tónlitarsogu! Og fyrir ykkur sem segið að Björn Jörundur sé lélegur söngvari þá skal ég afgreiða þetta fyrir ykkur íeitt skipti fyrir öll: Björn Jörundur er æðislegur söngvari!! Punktur!

Þetta var tónlistarhorn dagsins. Eða ekki því brennsla dagsins er eftir!Þ

Nostradamus-Nýdönsk
Rape me-Nirvana
Ef ég væri guð-SSSól
Stattu með mér-Klaufarnir
Nine to five-Dolly Parton

1 comment:

Anonymous said...

Já, akkúrat vörutalning í Byko þegar ég ætlaði að fara að kaupa svona bóluplast.. (æjj, þú veist, svona til að sprengja...) Ekki spyrja mig af hverju í ósköpunum mig vantaði svoleiðis sko...heh. (Þurfti sko að pakka inn myndaramma til að hann myndi ekki brotna á leiðinni til USA..)