Wednesday, October 17, 2007

Stolt mitt sem íslendings er verulega sært eftir að íslenska landsliðið í fótbolta tapaði fyrir Licthenstein áðan og það ekki bara 1-0 heldur 3-0!! Það versta við að ég var búin að spá því að þessi leikur færi svona 3-0 eða 4-0! Og eg sem hef takmarkað vit á fótbolta! En Halló 3-0 á móti Lichenstein eru bara tölur sem eiga alls ekki að sjást! Já Eyjólfur minn það er ekki nóg að vera eins ógeðslega fallegur eins og þú virkilega ert heldur þarf líka að ná árangri!

Ég veit ekki hversu margar kannanir ég hef tekið í fsu frá svona stofnunum eins og rannsóknum og greiningu þar sem meðal annars er spurt um eiturlyf æ-i þið sem hafið tekið svona kannanir vitið alveg hvaðég er að tala um. Kannski lentuð þið sællar minningar í "stuttu könnunnini" sem var mjög stutt eða 56 blaðsíður!! En alla vega var að taka svona könnunn í morgunn og þar vaoru 2 mjög svo athyglisverðar spurningar sem komu í könnunninni

1 (hún var samt ekki nr 1) hvað teluru þig vita um vini þína:
þetta var svona abc spurning í nokkrum liðum og síðan kemur þetta óborganlega:
heldur þú að vinir þínir skoði klám hvort sem er á netinu í blöðum eða á videoi!!
Og hin: Telur þú vini þína gorta sig af kynlífsreynslu sinni!!
Og það sem mér finnst afhugaverðast við þetta að það vantaði svarmöguleikann ég vil ekki vita það!!!!!!!

Airwaves um helgina og að því tilefni þá verð ég jafnvel bara í vörutalningu! Nice þó þetta sé ekki gaman þá fæ ég pening!!

Brennsla dagsins:
Layla-Eric Clapton
I want it all-Queen
Great pertender-Freidie Mercury
Walking after you-Foo fighters
Must have been love-Roxette

No comments: