Sunday, November 11, 2007

Eddan verður veitt í kvöld á sunnudagskvöldi sem eru verulega góð sjónvarpskvöld meina ofurhnakkinn Ólafur Ragnar kommúnisti dauðans Georg og hinn villti Daníel (hann er viltur í lífinu en karakterinn er alltaf að verða skemmtilegri!) í næturvaktinni og svo er Prison Break að byrja sem eru einu þættirnir sem hreinlega gera mig fáránlega pirraða! En ætli þetta endi ekki þannig að ég muni droppa þessu öllu fyrir Edduna þv ég er áhugamanneskja um fáránlegar íslenskar verðlaunahátíðir eins og Edduna en ég ætla að spá í hvernig þetta fer allt saman!hmmm Svona folk sem ræður hver eigi að vinna svona alltaf að hugsa svona eins og við hin en mín spá:

TILNEFNINGAR TIL EDDUVERÐLAUNANNA ÁRIÐ 2007 ERU:

Kvikmynd ársins

FORELDRAR

Framleiðendur Nanna Kristín Magnúsdóttir, Ingvar E. Sigurðsson, Víkingur Kristjánsson, Gísli Örn Garðarsson, Nína Dögg Filippusdóttir, Ólafur Darri Ólafsson og Ragnar Bragason.

Framleiðslufyrirtæki: Vesturport. Leikstjóri Ragnar Bragason



VANDRÆÐAMAÐURINN

Framleiðendur: Júlíus Kemp og Ingvar Þórðarson

Framleiðslufyrirtæki: Kvikmyndafélag Íslands. Leikstjóri Jens Lien



VEÐRAMÓT

Framleiðandi: Halldór Þorgeirsson

Framleiðslufyrirtæki: Umbi. Leikstjóri Guðný Halldórsdóttir


Leikið sjónvarpsefni ársins

NÆTURVAKTIN

Leikstjóri Ragnar Bragason. Framleiðslufyrirtæki Sagafilm

Framleiðendur Magnús Viðar Sigurðsson, Þór Freysson og Harpa Elísa Þórsdóttir.

Sýnt á Stöð 2.


SIGTIÐ ÁN FRÍMANNS GUNNARSSONAR

Leikstjóri Ragnar Hansson. Framleiðslufyrirtæki Sigtið ehf. fyrir Skjáeinn.

Framleiðendur Friðrik Friðriksson, Gunnar Hansson, Halldór Gylfason og Ragnar Hansson.

Sýnt á Skjáeinum.



STELPURNAR

Leikstjóri Sævar Guðmundsson. Framleiðslufyrirtæki Sagafilm.

Framleiðendur Magnús Viðar Sigurðsson, Þór Freysson og Harpa Elísa Þórsdóttir.

Sýnt á Stöð 2.



Stuttmynd ársins

BRÆÐRABYLTA

Leikstjóri og framleiðandi: Grímur Hákonarson.

Framleiðslufyrirtæki Hark ehf.


SKRÖLTORMAR

Leikstjóri Hafsteinn G. Sigurðsson.

Framleiðendur Davíð Óskar Ólafsson, Árni Filippusson, Hrein Beck og Hafsteinn G. Sigurðsson.

Framleiðslufyrirtæki Mistery Island efh.



ANNA

Leikstjóri Helena Stefnánsdóttir.

Framleiðandi Arnar Steinn Friðbjarnarson.Framleiðslufyrirtæki Undraland kvikmyndir ehf.

Leikstjóri ársins

Guðný Halldórsdóttir fyrir kvikmyndina Veðramót

Gunnar B. Guðmundsson fyrir kvikmyndina Astrópía

Ragnar Bragason fyrir kvikmyndina Foreldrar



Handrit ársins

GUÐNÝ HALLDÓRSDÓTTIR

fyrir handritið að kvikmyndinni Veðramót



RAGNAR BRAGASON, NANNA KRISTÍN MAGNÚSDÓTTIR, INGVAR E. SIGURÐSSON, VÍKINGUR KRISTJÁNSSON OG LEIKHÓPURINN

fyrir handritið að kvikmyndinni Foreldrar



JÓHANN ÆVAR GRÍMSSON, JÓN GNARR, JÖRUNDUR RAGNARSSON, PÉTUR JÓHANN SIGFÚSSON OG RAGNAR BRAGASON

fyrir handritið að sjónvarpsþáttaröðinni Næturvaktin


Leikkona ársins í aðalhlutverki

HERA HILMARSDÓTTIR fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Veðramót Ef það er eitthvað réttlæti til í heiminum þá verður Hera valinn besta leikkonan hún var óþægilega sannfærandi!

NANNA KRISTÍN MAGNÚSDÓTTIR fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Foreldrar

TINNA HRAFNSDÓTTIR fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Veðramót



Leikari ársins í aðalhlutverki

GUNNAR HANSSON fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttaröðinni Sigtið án Frímanns Gunnarsson

INGVAR E. SIGURÐSSON fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Foreldrar

PÉTUR JÓHANN SIGFÚSSON fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttaröðinni Næturvaktin Ef Pétur fær þetta ekki þá verð ég brjáluð!! Svo einfalt er það!

Leikkona eða leikari ársins í aukahlutverki

BJÖRN INGI HILMARSSON fyrir hlutverk sitt í stuttmyndinni Bræðrabyltu

GUNNUR SCHLUTER fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Veðramótum

JÖRUNDUR RAGNARSSON fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Veðramótum

LILJA GUÐRÚN ÞORVALDSDÓTTIR fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Kaldri slóð

ÞORSTEINN BACHMAN fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Veðramótum Hann eða Jörundur (betur þekktur sem Daníel í Næturvaktinn!)

Heimildarmynd ársins

HEIMA

Leikstjóri Dean DeBlois

Framleiðendur John Best, Dean O´Connor

Framleiðslufyrirtæki Klikk Film, EMI Records og Truenorth



LIFANDI Í LIMBÓ

Leikstjórar Hrafnhildur Gunnarsdóttir, Tina Naccache og Erica Marcus.

Framleiðandur Hrafnhildur Gunnarsdóttir og Erica Marcus.

Framleiðslufyrirtæki Krumma film.



SYNDIR FEÐRANNA

Leikstjórar Ari Alexander Ergis Magnússon og Bergsteinn Björgúlfsson

Framleiðendur Bergsteinn Björgúlfsson og Hrönn Kristinsdóttir

Framleiðslufyrirtæki Köggull efh. og Kvikmyndafélagið Tröllakirkja
Samt er ég hrædd við þetta helvítis Sigurrósarsnobb hjá Íslendingum endalaust. Síðan er nafnið á hinum leikstjóranum efni í Gettu betur spurningu!!

Frétta og/eða viðtalsþáttur ársins

KOMPÁS

Framleiðslufyrirtæki: 365/Stöð 2.

Framleiðandi: Ingi R. Ingason. Umsjónarmaður Jóhannes Kr. Kristjánsson.

Sýnt á Stöð 2.
Mjög einfalt!

ÚT OG SUÐUR

Framleiðandi: Gísli Einarsson fyrir Ríkisútvarpið-Sjónvarp.

Umsjónarmenn Gísli Einarsson og Freyr Arnarson.

Sýnt á RÚV



WILLTIR WESTFIRÐIR

Framleiðslufyrirtæki: Íslenska heimildamyndagerðin.

Framleiðandi Kári G. Schram

Sýnt á RÚV.



Menningar- og/eða lífsstílsþáttur ársins

07/08 BÍÓ LEIKHÚS

Framleiðslufyrirtæki: Pegasus fyrir Ríkisútvarpið – Sjónvarp.

Upptökustjórn Jón Egill Bergþórsson og Þorsteinn J. Vilhjálmsson.

Umsjónarmaður Þorsteinn J. Vilhjálmsson.

Sýnt á RÚV




KILJAN

Framleiðslufyrirtæki: Ríkisútvarpið-Sjónvarp.

Upptökustjórn Ragnheiður Thorsteinsson. Umsjónarmaður Egill Helgason.

Sýnt á RÚV



TÍU FINGUR

Framleiðslufyrirtæki: Ríkisútvarpið – Sjónvarp.

Upptökustjórn: Jón Egill Bergþórsson. Umsjónarmaður: Jónas Sen. Sýnt á RÚV



Skemmtiþáttur ársins

GETTU BETUR

Framleiðslufyrirtæki: Ríkisútvarpið – Sjónvarp.

Upptökustjórn: Helgi Jóhannesson. Umsjónarmaður Andrés Indriðason. Sýnt á RÚV



TEKINN 2

Framleiðslufyrirtæki: Sagafilm.

Framleiðandi: Kristófer Dignus. Umsjónarmaður Auðunn Blöndal. Sýnt á Stöð 2



ÚTSVAR

Framleiðslufyrirtæki: Ríkisútvarpið – Sjónvarp.

Upptökustjórn Helgi Jóhannesson. Umsjónarmenn Þóra Arnórsdóttir og Sigmar Guðmundsson.Sýnt á RÚV



Sjónvarpsmaður ársins

EDDA ANDRÉSDÓTTIR, Stöð 2

EGILL HELGASON, RÚV

JÓHANNES KR. KRISTJÁNSSON, Stöð 2 Allt frábært sjónvarpsfólk en Jóhannes hefur tekið til í samfélaginu og ef ég verð einhvern tíma forseti fær han fálkaorðuna frá mér privat og persónulega!

ÞÓRA ARNÓRSDÓTTIR, RÚV

ÞORSTEINN J. VILHJÁLMSSON, RÚV



Myndataka og klipping

BERGSTEINN BJÖRGÚLFSSON fyrir myndatöku í Foreldrum

G. MAGNI ÁGÚSTSSON myndatöku í Heima

VÍÐIR SIGURÐSSON fyrir myndatöku í Kaldri slóð



Hljóð og tónlist

BIRGIR JÓN BIRGISSON OG KEN THOMAS fyrir hljóðvinnslu á Heima

GUNNAR ÁRNASON fyrir hljóðvinnslu í Kaldri slóð

PÉTUR EINARSSON fyrir hljóðvinnslu í Veðramótum



Útlit myndar

ÁRNI PÁLL JÓHANNSSON fyrir leikmynd í Kaldri slóð

REBEKKA INGIMUNDARDÓTTIR fyrir búninga í Veðramótum

TONIE ZETTERSTRÖM fyrir leikmynd í Veðramótu

Hljóð og tónlist

BIRGIR JÓN BIRGISSON OG KEN THOMAS fyrir hljóðvinnslu á Heima

GUNNAR ÁRNASON fyrir hljóðvinnslu í Kaldri slóð

PÉTUR EINARSSON fyrir hljóðvinnslu í Veðramótum

Svona! Hvað ætliði að gefa mér ef ég verð með eitthvað rétt??

No comments: