Wednesday, November 28, 2007

Ekki meira blátt og bleikt

Kolbrún Halldórsdóttir alþingismaður Vinstri grænna hefur lagt fram fyrirspurn til heilbrigðisráðherra á Alþingi um hvernig sú hefð hafi mótast að klæða stúlkur í bleikt og drengi í blátt á fæðingardeildum og auðkenna þá með bláum armböndum og stúlkur með bleikum. Spyr Kolbrún hvort ráðherra telji koma til greina að því verði breytt þannig að nýfædd börn séu ekki aðgreind eftir kyni og að þau verði framvegis klædd í hvítt „eða aðra kynhlutlausari liti“.

Þetta er komið út í svo mikið bull þetta jafnréttis dæmi að það er ekki fyndið! Það má ekki segja ráðherra heldur á að finna e-ð asnalegt kynlaust orð eins og ráðskona sem er bara sveitó feministar sniðganga Eigil helga vegna karlrembu í þáttunum sínum og nú má ekki setja núfædd börn í bleikt og blátt heldu í kynlausaliti eins og hvítt! Hvar endar þetta?? Eigum við ekki bara að vera tvítóla!! Og plús það að þetta er fyrirspurn á Alþingi sem fær mann til að hugsa: hafa þeir vikilega ekkert annað við tímann sinn að gera en að standa í einhverju svona rugli??! jahér og þetta fólk er í vinnu hjá okkur! Magnaður andskoti!!

Nú fer maðu að telja niðu í klukkustundum í dass dimmition! kreizí kreiz!!

No comments: