Það eru aðeins 20 dagar eftir á önninni eða 19 ef að naður tekur ekki dimmiteringuna með því þá er maður í ...búning að gera sig að fífli! Og það er óhætt að segja það að stresstigin eru farin að tikka inn!
Er ekki Páll Óskar bara maður ársins?? Meina 3 singullinn af nýju plötunni komin í spilun og vá hvað það er flott! Betra líf og það er að toppa Allt fyrir ástina og International og það er ekki auðvelt. Það er líka búið að vera forhlustun á tónlist.is á nýju plötuna sem heitir allt fyrir ástina og af því sem ég hef heyt af henni þá er þetta plata sem verðu í ófáum jólapakkanum! Bara flot! Alla vega ætti Laufey að fíla hana alveg ítætlur enda er þetta teckno út í eitt og smá svona tanz tanz! Palli er komin á jólagjafalistann eins og meistari Moogison! Palli er samt mikið flottari!
Framan á coverinu á safndisknum hjá Nýdönsk (ég bara varð að eignast hann!) þá sannast það að Björn Jörundur á sér tvífara í Póllandi sem er ansi líkur honum en ekki fannst tvífari Jóns Ólafssonar! Langt frá því!
Brennsla dagsins:
Murr murr-Moogison
Sjávarguð(neptúnus)-Nýdönsk
Ekki nema von-Sálin og Gospel
Rock DJ-Robbie Williams
Hunang-Nýdönsk
1 comment:
Vá hvað ég öfunda þig af því að vera að fara að dimmitera!!! Það var sko skemmtilegasti sólarhringur lífs míns hingað til!! Njóttu dagsins í botn, og gangi þér svo bara rosalega vel í prófum og alles!
Post a Comment