MÖK MÖK MÖK MÖK!! Þökk sé búninganefndinnu þá er ég komin með orðið MÖK á heilann!! Og það er vægt til orða tekið slæmt! Enda vita allir sem eru komnir sem yfir 18 hvað orðið MÖK þýðir eða ég vona það þeirra vegna ef ekki jæja! En ein pæling sem datt inn svona á leiðinni í ræktina áðan: Hver er eintala orðsins MÖK?? MAK?? Eitt MAK mörg MÖK?? Hljómar það vel svona yfir höfuð?? Ég hafði MAK við mann í gær! Hljómar ekki mjög sexý!
Talandi um ræktina þá er búið að taka syrpu í að sýna Desperet Housewives undanfarið og núna er komið Friends þema! Okei en þar sem ekki er hljóð á sjónvarpinu þá er nauðsynlegt að hafa texta á svo maður skilji svona hvað er um að vera því ekki kann ég varalestur það er alveg ábyggilegt!Sem sagt það vantaði textann á Friends í ræktinni í dag og það er ekki að gera sig! Reyndar nákvæmlega sami þáttur og var í gær!
Hversu neyðarlegt væri það að detta af hlaupabrettinu?!
KOmst í búningin i gær og ó mæ god hvað þetta verður cooooooooooooooooool! Það eru bara 3 dagar efti!! Önnin er að verða búin! Sem er gleðilegt í hæsta lagi!
Lög dagsins:
Ekki-Sálin
Pride-U2
Relax (take it easy)-Mika
Tímans spegill-Einar Ágúst
If-Land og synir
No comments:
Post a Comment