Wednesday, December 19, 2007

Jólakortin check! Sem sagt buin að skrifa á öll jólakortin! Eitt sem ég tók samt eftir að kortin (sem eru i diskó kenndari kantinum!) eru ekki broti hornett saman heldur er það sem snýr niður nokkrum millímetrum lengri en það sem er ofan á! Minnir svoldið á þegar ég var í barnaskóla og var að búa til kort þá var brotið ekki alveg perfectly horn í horn en það sem ég er amator þá e þetta allt í lagi fyst svona verksmiðju unnin kort eru ekki horn í horn!

Jólahalaðborð í Perlunni í gærkvöldi og það eru held ég ekki til orð til að lýsa því hvað purusteikin var góð!! Þvílík snilld!Svona nett æfig fyrir mánudagskvöldið!

Dagur 3 á hælum og í dag þá tókst mér að hoppa án þess að detta og hálfri mínútu seinna datt ég-í ryksugusnúrunni!! Meira að segja það er aulalegra en að láta löguna stoppa sig fyrir að vera ekki með ljósi kveikt! Og það getur engin nema ég!! E það var eitt vandamál sem ég var buin að sjá fyrir mér með hælana og það að komast upp í jeppann hjá mömmu og pabba sem er engi yaris en okei! Fór í skónum í bæinn í gærkvöldi og þurfti því að fara upp í jeppann áhælunum sem gekk eins og í sögu en vandamáli ég verð í dressi og ég er ekki buin að æfa það hvernig ég fer upp í jeppann í dressiu til að vera dömuleg og allt það!

Váááááá´hvað það getiur verið erfitt að kaupa jólagjfir eða öllu heldur að láta sér detta e-ð í hug til að gefa í jólagjafir! Ég á nokkrar eftir og ég er ekki með fjörugasta ímyndunaraflið þannig þetta er langt í frá að vera e-ð auðvelt! HJÁLP!!

Af hveju i ósköpunum segir maður að maður sé að fara að sofa í hausinn á sér??!

No comments: