Ég varð strax hrifin af honum þegar ég sá hann," segir kona á níræðisaldri um kærasta sinn sem hún kynntist á elliheimilinu Grund. Þau eru óaðskiljanleg í dag.
Það er ekki oft sem fólk á níræðisaldri finnur ástina að nýju en þannig varð það í tilviki Guðrúnar og Vigfúsar sem bæði eru 83 ára. Guðrún hefur dvalið á elliheimilinu Grund í 10 ár en Vigfús í 5. Guðrún segir að það hafi verið ást við fyrstu sýn þegar þau hittust.
Guðrún og Vigfús rugluðu saman reitum fyrir alvöru þegar þau sameinuðu herbergin. Nú sofa þau í herbergi Vigfúsar og horfa á sjónvarpið í Guðrúnar herbergi. Bæði eru þau við hestaheilsu og hafa nóg fyrir stafni, ferðast saman og bregða sér stundum á Hótel sögu til að gera sér dagamun.
Makar þeirra beggja féllu frá fyrir mörgum árum en þau eiga herskara af börnum frá fyrri hjónaböndum.
það er ekki oft sem maður sér svona kruttlegar frettir...eg er svo væminn að eg næstum táraðist! Enda er eg eina manneskjan i husinu sem er ekki í sambandi!
1 comment:
þú ert ekki su eina! þetta er bara kruttlegt
Post a Comment