Stýrivextir eru þeir vextir sem yfirvöld nota til að reyna að hafa áhrif á markaðsvexti. Víðast eru þetta vextir á einhvers konar seðlabankaútlánum eða -innlánum. Tilgangur með hækkun slíkra vaxta getur verið að draga úr ofþenslu og verðbólgu eða hækka gengi gjaldmiðils. Hér á landi eru stýrivextir þeir vextir sem Seðlabanki Íslands ákveður á fyrirgreiðslu við lánastofnanir í formi svokallaðra endurhverfra verðbréfaviðskipta, en í þeim viðskiptum geta lánastofnanir fengið fé að láni frá Seðlabankanum í fjórtán daga gegn veði í skuldabréfum.
Hvernig væri að mæta á kaffistofuna á morgunn að segja: Haha eg veit hvað stýrivextir eru??? Töff?? tjahh veit ekki...!
Þessi fróðleiksmoli er í boði wikipedia!
No comments:
Post a Comment