Monday, June 23, 2008

Vísir, 23. jún. 2008 10:29

Þriðji ísbjörninn á Skaga?

Tveir ísbirnir hafa þegar verið felldir á Skaga, annar á Þverárfjalli og hinn við Hraun á Skaga. Þyrla Landhelgisgæslunnar er væntanleg norður á Skaga í Skagafirði til þess að kanna hvort þriðji ísbjörninn sé þar. Eftir því sem segir í tilkynningu lögreglunnar á Sauðárkróki barst henni tilkynning frá fólki í gærkvöld, sem var á göngu við Bjarnarvötn á Skaga, um að það hefði hugsanlega séð ísbjörn við Bjarnarfell.

Sá fólkið tilsýndar hvítt dýr sem hreyfði sig þunglamalega. Fólkið náði ljósmyndum af dýrinu en þær munu þó vera nokkuð óskýrar. Eftir skoðun myndanna og viðræður við fólkið, sem lögregla telur trúverðugt, var ákveðið að leita svæðið úr lofti. Var notast við tvær flugvélar í nótt við leitina en þoka gerði þó leitarmönnum erfitt fyrir.

Sem fyrr segir er vona á þyrlu Landhelgisgæslunnar sem halda mun leitinni áfram. Vill lögreglan beina því til vegfaranda á þessu svæði að sýna aðgát og hvetur hún fólk til þess að vera ekki á ferð á þessum slóðum að óþörfu.

Bjarnarvötn eru nokkuð sunnar en Hraun þar sem síðasti björninn kom á land en norðaustan við Þverárfjall þar sem fyrsti björninn var felldur


Hvað er málið með þessa ísbirni?? Geta þeir ekki verið heima hjá sér???? Okei eða ef þeir koma verið þá svona kruttlegir og þeir eru i coca cola auglýsingunum!!

Tuesday, June 17, 2008

Hæ hó Jibbi hei og jibbi jei...! Já gott fólk upp er runninnn dagurinn þar sem essu ágæta lagi er nauðgað og rétt rúmlega það! Þetta lag er ekki spilað á utvarðsstöðvunum eða inn publikk nema þennan eina dag og ó mæ god það er spilað í klessu! Minnir kannski a sum jólalög i desember! Sumarið í algleymi og hálft ár en i jól...! Næs tenging

Annars 17 juni dagskráin á Selfossi...æi við hverju a að búast þegar skemmtistaðarmálin eru eins og þau hafa verið...það var allt steindautt i gær bara til dæmis! Metnaðurinn við að folk fai að skemmta sér herna er að drepa alla! uss! En eg verð samt að segja það að var mjööög gaman á klaufunum á lau á 800 bar! Ef eg væri að halda party myndu þeir sennilega spila!:)

Jæja eg ætla að reyna að kaupa mer blöðru einhvers staða!

Wednesday, June 11, 2008

Sektaður fyrir að flytja inn ástarhandjárn

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann á fertugsaldri í 40 þúsund króna sekt fyrir að reyna að flytja inn 36 „ástarhandjárn" og krem, sem innihélt lyf.

Varningurinn var í vörusendingu, sem lagt var hald á árið 2006. Í sendingunni voru m.a. 36 sett af handjárnum úr málmi og 24 túpur af Anal-ease kremi auk 14 nuddtækja, banda, kúlna og svipa. Einnig voru í sendingunni 24 glös af svonefndri spanskflugu, vökva sem talinn er kynörvandi.

Í dómnum er vitnað í bréf aðstoðaryfirlögregluþjóns á höfuðborgarsvæðinu til innflytjandans varðandi handjárnin þar sem segir: „,Um er að ræða svokölluð „love cuffs” og eru ætluð til nota í ástarleikjum. Handjárnin eru allvönduð, úr málmi og fóðruð. Á þeim er rofi og ef þrýst er á rofann opnast járnin. Auðvelt er að ná til rofans séu hendur járnaðar með einu setti. Ef aðili er járnaður með einum járnum um hvorn úlnlið og til dæmis við sitt hvorn rúmstólpann er vonlaust að opna þau án utanaðkomandi hjálpar.“

Beðið var um rannsókn og mat Lyfjastofnunar á innihaldi kremtúpanna og samkvæmt niðurstöðu stofnunarinnar innihélt Anal-ease kremið Benzocain 10% sem er lyf og þarf sérstakt leyfi til að flytja inn.

Maðurinn kannaðist við að hafa flutt inn umrædd handjárn og túpur og ætlað að selja varninginn í verslun sem hann rekur. Hann sagðist hafa talið, að innflutningurinn væri heimill enda hefði hann flutt handjárn af þessu tagi inn áður og handjárn væru til sölu hér á landi í leikfangaverslunum og kynlífsverslunum.

Þá sagðist hann ekki hafa gert sér grein fyrir að kremið innihéldi ólöglegt efni og væri því ekki leyft til innflutnings.

Dómurinn vitnar í ákvæði vopnalaga um að öðrum en lögreglu sé óheimilt að flytja til landsins, framleiða eða eignast handjárn og fótajárn úr málmi eða öðru efni. Enda þótt taka megi undir að umrædd handjárn virðist auðlosanleg við flestar aðstæður verði ekki fram hjá því horft að orðalag vopnalagaákvæðisins sé fortakslaust og geri engan greinarmun á handjárnum eftir því hvernig þau eru útbúin með tilliti til læsingabúnaðar.


Okei ein spurning;eru ástarhandjárn eitthvað öðruvisi en venjuleg handjárn???? Eru þetta ekki bara venjuleg handjárn??? Spes!

Sunday, June 08, 2008

Rifjar upp gamlar góðar minningar...!







Segi það en og aftur: youtube er snilld!:)

Friday, June 06, 2008



Leita eftir fólki sem er alveg desperat i að sjá Bubba byggir i villta vestrinu...! sko fólki sem er komið yfir tvítugt...!

Thursday, June 05, 2008






Smá skjálfta myndir! Eða kannski ekki smá þvi þessi ágæti skjálfti var ekki beint lítill...!

Annars bara hress tiltölulega nýkomin ur bænum þar sem eg var undir stýri! Og juju verzlaði eins og sannri konu sæmir! Og ef þið viljið vera góð við ykkur sjálf án sjálfsfrounar: Nyji safndiskurinn með Radiohead er málið!:P

But i'm creep i'm a weirdo...!

Tuesday, June 03, 2008



Vá hvað youtube er æðislegt! Þetta Gina G frá árinu 1996...ein spurning samt hvar er Gina G í dag?? Og er kjóllinn ekki svoldið svoldið stuttur miðað við að þetta er árið 1996???
Tvær athyglisverða fréttir:

Lögreglan leitar ísbjarnar

Lögreglan á Sauðárkróki er nú á leið upp á Þverárfjallsveg þar sem hún leitar ísbjarnar. Hefur lögreglan fengið nokkrar tilkynningar þess efnis og í Tíufréttum Útvarpsins staðfesti Þórarinn Leifsson, bóndi á Keldudal, að hann hefði orðið ísbjarnarins var.

Spes!!

Jake Gyllenhaal klæðist 66°Norður jakka

MYND/UsWeekly Í nýjasta tölublaði US Weekely sem kom út í gær er heilsíðu mynd af leikaranum Jake Gyllenhaal þar sem hann klæðist svörtum öndunarjakka frá 66°Norður með leikkonunni Reese Witherspoon.

Orðrómur um yfirvofandi hjónaband leikaranna hefur verið lífsseigur um nokkurt skeið og nýjustu fregnir herma að Jake vilji meira en bara hjónaband því hann vill ólmur eignast börn með kærustunni.

Jake er ekki eina stjarnan sem líkar vel við fatnað 66°Norður en eins og alþjóð veit þá eru til að mynda Quinten Tarantino og Eli Roth miklir aðdáendur 66°Norður auk þess sem Scarlet Johanssen og fleiri hafa sést klæðast fatnaði frá fyrirtækinu við ýmis tækifæri.

Hver i ósköpunum er þetta?? Skiptir kannski ekki öllu máli en mer finnst svona frettir vera svina how do you like iceland eitthvað þar sem allir verða geðvekir þegar það er einhver frægur i íslenskri hönnunn! Magnað!!

En eg er á lífi eftir alla þessa jarðskjálfta sem eru bunir að vera nokkrir...kannski það sem er mest pirrandi er að vera komin upp í rúm og hafa það kózy og þá fer bara allt að hristast! Svoldið mikið scary þegar þeir koma á nóttunni!

Var að eignast þarna 100 eurovisionlög pakkann 5 diskar og það er eitt sem fer svoldið mikið i taugarnar og það er að this is my life valentine's lost og congratulation með Sylvíu Nott eru öll í íslensku utgáfunum! Hvað er það??? Ég vil bara hafa þetta utgafurnar eins og þær voru þegar lagið var flutt á stóra sviðinu einhvers staðar uti i heimi! En muniði eftir laginu Ohh ahh just a little bit með Ginu G sem varð í áttunda sæti í keppninni 1996 (ath þetta stendur á textablaðinu eða þið bitið þessu sem fylgir kassanum! ég mundi þetta ekki en eg veit þetta líur alls ekki vel út!!) eg á það á vá hvað það er að rifja upp góðar minningar! Ég var 10ára! Ohh ahh just a little bit ohh ahh little bit more...!