Tuesday, June 03, 2008

Tvær athyglisverða fréttir:

Lögreglan leitar ísbjarnar

Lögreglan á Sauðárkróki er nú á leið upp á Þverárfjallsveg þar sem hún leitar ísbjarnar. Hefur lögreglan fengið nokkrar tilkynningar þess efnis og í Tíufréttum Útvarpsins staðfesti Þórarinn Leifsson, bóndi á Keldudal, að hann hefði orðið ísbjarnarins var.

Spes!!

Jake Gyllenhaal klæðist 66°Norður jakka

MYND/UsWeekly Í nýjasta tölublaði US Weekely sem kom út í gær er heilsíðu mynd af leikaranum Jake Gyllenhaal þar sem hann klæðist svörtum öndunarjakka frá 66°Norður með leikkonunni Reese Witherspoon.

Orðrómur um yfirvofandi hjónaband leikaranna hefur verið lífsseigur um nokkurt skeið og nýjustu fregnir herma að Jake vilji meira en bara hjónaband því hann vill ólmur eignast börn með kærustunni.

Jake er ekki eina stjarnan sem líkar vel við fatnað 66°Norður en eins og alþjóð veit þá eru til að mynda Quinten Tarantino og Eli Roth miklir aðdáendur 66°Norður auk þess sem Scarlet Johanssen og fleiri hafa sést klæðast fatnaði frá fyrirtækinu við ýmis tækifæri.

Hver i ósköpunum er þetta?? Skiptir kannski ekki öllu máli en mer finnst svona frettir vera svina how do you like iceland eitthvað þar sem allir verða geðvekir þegar það er einhver frægur i íslenskri hönnunn! Magnað!!

En eg er á lífi eftir alla þessa jarðskjálfta sem eru bunir að vera nokkrir...kannski það sem er mest pirrandi er að vera komin upp í rúm og hafa það kózy og þá fer bara allt að hristast! Svoldið mikið scary þegar þeir koma á nóttunni!

Var að eignast þarna 100 eurovisionlög pakkann 5 diskar og það er eitt sem fer svoldið mikið i taugarnar og það er að this is my life valentine's lost og congratulation með Sylvíu Nott eru öll í íslensku utgáfunum! Hvað er það??? Ég vil bara hafa þetta utgafurnar eins og þær voru þegar lagið var flutt á stóra sviðinu einhvers staðar uti i heimi! En muniði eftir laginu Ohh ahh just a little bit með Ginu G sem varð í áttunda sæti í keppninni 1996 (ath þetta stendur á textablaðinu eða þið bitið þessu sem fylgir kassanum! ég mundi þetta ekki en eg veit þetta líur alls ekki vel út!!) eg á það á vá hvað það er að rifja upp góðar minningar! Ég var 10ára! Ohh ahh just a little bit ohh ahh little bit more...!

No comments: