Jáhh...síðan einhvern tima eftir bankahrun hef eg ekkert tjáð mig á þessi vettvangi og vil eg þar á meðal þakka facebook fyrir það því að facebook er...æjji þið vitið alveg hvernig facebook virkar! Eiga ekki allir mömmur og pabba og jafnvel ömmur sem eru á facebook?? Ekkert eins svalt og að eiga ömmu sem er á facebook;)
Anyway...eg skildi við ykkur síðast (vá minnir á eitthvað svona "In last episode of...) á fyrsta ári í félagsfræði í HÍ og það er ekkert svo sem breytt við það nema að nuna er eg á öðru ári mer sem sagt tokst að klára 1 ár...en eg fór kannski lengri leiðina að því með því að þurfa að fara í upptökupróf í aðferðafræði sem var skemmtilegt ekkert nema hugtakasúpa og ekkert æðislega skemmtilegt að læra undir það svo sem...og til að bæta gráu ofan á svart þá var prófið sjálf á afmælisdaginn minn sem var mánudagur en helgina áður þá voru kosningar en manni lét ser ekki detta það í hug að kikja á djammið því að maður var heima að læra...skynseminn aaaalveg að drepa mann.
Fyrir 10 mánuðum síðan bjó eg i litilli kjallaraholu á Háteigsveginum sem var alveg 11 fermetrar ekki með neinum gluggum þannig að það var bara dimmt inni og það varð meira að segja dimmt ef að strætó keyrði fram hjá þá varð basicly bara myrkur inni í herberginu...íhaaa! En svo gerðist það að eg fékk tölvupóst frá stúdentagörðunum þar sem mer var tilkynnt að eg hefði fengið íbuð á eggertsgötunni alveg 36 fermetrar og svalir!:D þannig að eg flutti á eggertsgötuna i februar og eg er að fila það geðveikt! fyrir utan það að núna loksins bý eg á 101 Reykjavík en eg bjó áður 10 mín frá hlemmi en samt í póstnúmeri 105...sem var ekki töff...Eini gallinn kannski við stúdentagarðan er kannski hvað það er hljóðbært her...eða eins og Magnús (sem að núna er í Danmörku) orðaði það þá heyrir maður hvort að gæjinn á efri hæðinni setur léttmjólk eða nýmjólk út á cheeriosið! (ath ýkjur!)
Eitt annað sem hefur lika breyst er að fyrir 10 mánuðum þá lifði eg drekar óhölli lifi mataræðið var bara krap hreyfði mig ekkert og svo framvegis. þetta var bara komið út i bull. þannig að eg ákvað að eg varð að gera eitthvað í málunum því að eg vil ekki hugsað það til enda hvernig það hefði farið hefði eg bara haldið áfram að sitja heima og ÉTA. Anyway þá ákvað eg að koma mer af stað í ræktinni og fá mer einkaþjálfara(maður er svo ríkur en meina hey þetta er alvöru fjárfesting!) og nuna siðan þá eru 11 kíló farin og liðanin er svo mikið mikið betri! En það að byrja var heeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeell!! Ég lá heima uppi i rumi nánast grenjandi undan harðsperrum sem voru pain en nuna sér maður að þetta borgaði sig af því að manni liður orðið mikið betur (spurning um að maður sé farinn að endurtaka sig...!)
Á þessum 10 mánuðum hef eg djammað kannski ótæpilega og þar af 6 sálarböll:D já sæll! Hvahh eg er í háskóla og háskólanemar gera ekkert annað en að djamma...það er buið að segja þetta svo oft við mig að eg er farin að trúa því sjálf að hásólanemar geri ekkert annað en að djamma...(allar helgar fram að prófum eru nánast fullar...okei það er smá sannleikskorn í þessu :P)
Og já síðan síðast: Michael Jackson er dáinn (ehh fór það framhjá einhverjum??)
En já eg kannski reyni að vera duglegri að blogga how about it....