Uuuu okei! Núna verður gerð enn ein tilraunin til þess að endurvekja þetta blogg mitt en þetta er tilraun nr...einmitt! En sjáum til. Magnað samt hvað facebook hefur breytt miklu þar á meðal blogg heimum. En hvað um það-er ekki ágætt að fara að blása lífi í þennan vettvang svona kannski líka af þvi að maður er að fara að skrifa BA ritgerð og svona fínt að geta notað Strumpinn þar sem maður þarf ekki að geta heimilda! Ekki nema kannski mbl eða vísir eða eitthvað. Og jú kannski facebook-magnað maður veit allt um alla út af facebook!
En já BA-það er sagt að það sé ekki erfitt að skrifa BA maður skrifar einfaldlega bara bjéééé og aaaa þá er maður búin að skrifa BA! Þetta er víst ekkert mikið flóknara sko...
En sem sagt ég er búin að velja mér efni til þess að skrifa um í BA ritgerðinni minni en það efni sem ég valdi mér að skrifa um er viðhorf til nauðgana-kannski ekki það mest uppbyggjandi og sennilega alls ekki það jólalegasta en er ekki hægt að redda því með einhverjum góðum playlistum? Sennilega
Sem sagt skólinn er að byrja nuna eftir slétta viku og ég verð að segja það að ég hlakka frekar mikið til um leið og ég kvíði því svoldið mikið að gera þar sem eg mun taka aðferðafræði 2-aftur! En ég skaal ná þessu öllu með stæl!! Ætli mesta áskoruninn verði ekki að hætta að djamma...eða alla vega reyna að draga úr því...wish me luck!! Akkuru að draga úr djamminu loksins þegar maður hefur fundið sinn uppáhaldsstað? hmm eða vera dugleg á virku dögum að læra og kikja aðeins út að dansa um helgar?;) Kannski ekki um hverja helgi en kannski stundum! En ég meina á maður ekki að taka því sem einhvers konar skilaboðum þegar maður fær flensu eftir að hafa djammað föstudag og laugardag-er það merki um slæmt karma?! hmm
En allavega STRUMPURINN IS BACK-og eftir að hafa skoðað það sem áður hefur verið párað á þessa síðu þá verður muuuuuun minna talað um eurovision og sálárböll og kannski farið að tala um eitthvað sem er meira töff eitthvað sem er mun meira miðbæjarrottulegt eins og hvaða kaffihús séu mest hipp og kúl á 101 Reykjavík hvaða skemmtistaði skal alls ekki fara á þegar maður er að rölta á milli þeirra-mig langar alls ekki að taka Dillon af þeim lista sko....
Uuuuu eg vona að ég bloggi aftur í þessari viku því eins og áður sagði-THE STRUMPUR IZ BAAAAACK!:D
4 comments:
velkomin til baka ofurdjammstrumpur
kv binna
hvernig værir að þú færir aftur að blogga mín kæra ? :D
Skemmtilegt blogg! Gott líka að hafa blogg til að koma sér í skrifgírinn ;-)
þvi að eg nenni ekki blogga
Post a Comment