Vúhú ég verð stillt stelpa um helgina og það aðra helgina í röð! Vúhú! Eða kannski ekki. Ég meina það er kannski ekki neitt voða skynsamlegt að afneita því að maður sé veikur og skella sér á menningarnótt! Hjúkk it síðasta fíflið er ekki fætt! En okei heilsan hjá mér er á leiðinni vonandi eg verð kannski ekki komin með mina yndisfögru rödd í skólanum á mánudaginn en hún kemur-someday! En okei mistök nr 2 voru greinilega að fara á menningarnótt þó svo að ég fynndi ekki mikið bragð af því sem ég lét ofan í mig og fann ekkert nema kveflykt (er ég bara svona geðveik að ég finn sérstaka lykt eitthvað sem ég kalla hreinlega kveflykt þegar að maður er ógeðslega kvefaður?!) og mistök nr 2 voru að fara á mömmu og pabba staðinnn Thorvaldsen (og þann stað sem mér finnst eiginlega skemmtilegast að djamma á...) og fékk mér burger ...ostaborgara eitthvað sem var frekar ódyrt...en þvílík vonbrigði!! Ég sem er þvílík áhugamanneskja um burgera verð eiginlega að segja það að þessi burger þarna var eiginlega ekki neitt neitt...fór eiginlega út af staðnum hálf svöng og hálf fúl með helling af hori-og þetta var bara ostborgari! Magnað að fara samt í fýlu yfir ostborgara sem að var ekki eins og maður vildi hafa hann. Sérlegt!
En ef að þið eruð diskópinnar mæli ég samt með því að þið farið og dansið á Thorvaldsen-það er svo langt frá því að vera leiðilegt :D
En sem sagt önnur helgin sem verður tekin rólega-alveg þvert gegn mínum vilja-og það af þvi að það er enþá smá hor í nefi...fer alveg að minna mann á það þegar maður er í prófum þar sem allir aðrir eru að gera eitthvað skemmtilegt nema ég sem sit heima og læri. Og þegar að maður er í einhverjum svona aðstæðum er eins og að maður hafi hreinlega gaman að því að pina sjálfa sig hlustar á Sigga Hlö þegar að maður veit að maður getur ekki djammað...svona eins og þegar single lið er að hlusta á rólegt og rómantískt en það veit að það er enginn þarna við hliðina á því sem að heldur utan um það. Er þetta ekki dæmi um svona sadó masó dæmi eitthvað..? Shitt er ég þá svoleiðis...? Ekki það að ég hafi áhuga á einhverju svoleiðis-tek það skýrt fram!! Sé einhverja hluta fyrir mer Gumma í Byrginu...einmitt!
1 comment:
frábært að þú skulir vera farin að blogga!
Post a Comment