Friday, September 24, 2010

Maður er alltaf að fá ráðleggingar frá fólki um það sem maður á að gera og það sem maður á ekki að gera og einnig ráðleggingar um það hvað ber að varast svo sem eins og passaðu þig á bílunum farðu varlega yfir Heiðina (ef maður er á leiðinni í Borgina) og ef maður var yngri þá var mamma vön að segja Passaðu þig á strákunum. Í gærkvöldi var 1sti í Októberfest og áður en góð vinkona min signaði sig út af msn þá fékk ég þessar ráðleggingar um hluti sem ber að varast:

Skemmtu þér alveg ógeðslega vel í kvöld en í guðanna bænum passaðu þig á öllum baðkörum sem kunna að verða á vegi þínum!

Einmitt!

En 2 í októberfest í kvöld:D whoop!!

Tuesday, September 21, 2010

Einhvern veginn svona lítur line upið fyrir Októberfest út:

Böndin sem munu koma fram á Ring Rokkfest eru:
Hydrophobic Starfish
Of Monsters And Men
Moses Hightower
Ourlives
Benny Crespo´s Gang
Árstíðir
Lára Rúnars
Mammút
200.000 naglbítar

Októberfest:
Mottukeppni, búningarkeppni, pretzel, öl, bratwurst, lúðrasveit, jóðlari og margt margt fleira

Sveitaball:
DJ Atli og Skítamórall mun gjörsamlega trylla lýðinn með alvöru sveita stemmningu!


Gjööööðveikt!!:D

....og tjaldið er komið upp-það er fokking huuuuuuuuuuuuuuge!!

Allt að frétta af Bjééé aaaa! Spurningarnar eru tilbúnar úrtakið er klárt á eftir að fá samþykki kynningarbréfið er klár þannig nú á ég eftir að rigga upp könnunninni og senda hana út! Whoop!

Þetta innskot með BA dæmið sýnir að ég hugsa ekki bara um OKTÓBERFEST og aðra viðlíka viðburði!

Saturday, September 18, 2010

Ég er þannig manneskja að þegar það er eitthvað alveg að fara að gerast í lífi mínu sem er spennandi og skemmtilegt eitthvað sem felur í sér mikla gleði mikið grín og kannski örlítið djamm þá breytist ég í lítinn krakka í dótabúð (eða kannski í nammibúð) og líf mitt verður alveg heltekið af því! Og líf mitt þessa dagana er einmitt litað af einum sklíkum viðburði sem mun eiga sér stað í næstu viku en á fimmtudaginn byrjar OKTÓBERFEST!! Ó mææææ gad 3000 manns í tjaldi að drekka bjór-það er eitthvað sem bara getur ekki klikkað! Alla vega þá klikkaði það ekki í fyrra ég meina DIKTA og Ensími halló það er eitthvað sem getur ekki klikkað! Eini ókosturinn kannski við OKTÓBERFEST er þessu hætta sem er á því að fá bjór í hausinn-en ég fékk væææænann slurk í hausinn af bjór á OKTÓBERFEST í fyrra-eeeelska það! Bara elska að vera á djamminu og fá bjór eða annað áfengi yfir mig-það er á þannig mómentum sem maður veltir því fyrir sér af hverju í andskotanum er ég að hafa mig til ef ég fæ nokkur bjórglös yfir mig?! En eitt sem er líka óþolandi er að ég lenti einu sinni í því að vera úti að skemmta mér fór á barinn og keypti með coke. Ég var búin að labba kannski 10 skref geðveikt happý eitthvað með glasið mitt þegar að það var einhver sem rakst utan í mig sem gerði það að verkum að ég missti glasið í gólfið! Jeeeess!!

Hafiði einhvern tíma velt því fyrir ykkur hvað það eru margir lítrar af áfengi á gólfinu á skemmtistöðum.

Slapp við Létt Bylgjuna í ræktinni í gær-ég fór í Hádegispúl!

Lykilorðin í minu lífi er djamm og ræktin-bíddu er ég ekki að skrifa Bjééé aaa? Er það ekkert issue?!

Wednesday, September 15, 2010

Jæææææææææææææææææææææja ég er að vona að það sé ekki komið haust en ég held að mér verði ekki að ósk minni! Hvað er það?!

Ó mææææ god hvað laugardagskvöldið var fokk fyndið (Þetta er samt skrifað á miðvikudegi) og ég komst að því að það er ágætt stundum að geta verið gleðigjafi vina sinna. Whoop! Anyway þá átti ein vinkona mín afmæli og eins og lög gera ráð fyrir þá fjölmenntum við stelpurnar í mega partý! Eeeen ekki hvað?! Þannig að mín ákvað að reyna líta fabúluslí út þetta kvöld enda var svo stefnan tekin á að skoða folana á 101 eftir afmæli. En ekki hvað! (varúð er með þennan frasa á heilanum). Mín sem sagt keypti sér kjól fyrir kvöldið (ekki kannski sérstaklega fyrir það en okei...) og er komin í massa fíling búin að slétta á sér hárið og komið að því að mála sig og skellti bara sólarpúðri í sméttið á mér eins og mér væri borgað fyrir það kláraði að mála mig og græja mig og fór svo að ná í eina vinkonu mína og fórum svo út á Nes að ná í Tinnu vinkonu. Anyway allt leit vel út þangað til að við vorum komum inn til Tinnu sem var enþá að græja sig. Þegar Tinna sér mig fær hún áfall svo vææægt sé til orða tekið. Og við erum að tala um að Tinna verður nánast aldrei orðlaus. Hún hálf öskrar á mig: "Ágústa hvað er að sjá þig?! Hvað í andskotanum varstu að stetja framan í þig?!" "uuu sólarpúður" stama ég hálf partinn. Hakan á Tinnu dettur á bringuna á henni. "Ó mææææ gad Ágústa varstu aað meika þig með SÓLARPÚÐRI?!?!?! þú lítur út eins og versta skinka!!" Og við að heyra þetta fæ ég vægt sjokk og stekk að speglinum og sé þá að ég lít út eins og gella sem hefur skitið í andlitið á sér!!!! Þetta var hooooorbjóðuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuur!! En þetta var samt græjað skinku lúkkkið var þvegið rétt settur á smá kinnalitur og þá var ég til búin fyrir kvöldið. Ég hef aldrei verið svona litið máluð á djamminu bara með augnskugga maskara og kinnalit en sólarpúðrinu fræga var smellt á mig sem kinnalit.

En jæja við komumst á endanum á partý eftir að hafa hlegið okkur máttlausakr af skinkutilburðum minum sem voru kannski svoldið leim en okei. Það er alla vega komin hugmynd að búning fyrir Halloween! ó mææææ! En anyway massa stemmning í partýinu nóg af slúðri af áfengi (fyrir þá sem vildu) og sjúúúklega góð súkkulaðikaka (við stelpurnar erum á þeirri skoðunn að stundum getur súkkulaði komið í staðinn fyrir kynlíf!!). Frið varð að líða að því að við færum í bæinn þannig að það var ákveðið að taka smá klósett trúnó á þetta á meðan að var verið að klára að græja sig. Allt í lagi með það. Inn á klósettinu var baðkar sem er alls ekkert óeðlilegt. Við ákveðum tvær að hlamma okkur á baðkarið og kjafta þar. Sem var kannski ekki besta hugmynd í heimi þar sem að ég dett ofan í baðkarið!!! Foooookk!! Og það er svoldið vandræðalegt að segja frá þessu vegna þess að ég var edrú gellan as usual!! Ó mææææ!

Fór í ræktina í morgunn og playlistinn sem að var í boði léttbylgjunnar var einhvern veginn svona:

Helgi Björns og Reiðmenn vindanna-Lindin (jesss!)
Stebbi og Eyfi-Nína (flott lag en virkar ekki i ræktinnai soooorry!)
Eagles-What do a do with my heart (voða fallegt lag og allt það en alls ekki í uppáhaldi þegar maður er að lyfta eins og enginn sé morgunndagurinn)
Aint no sunshine-man ekki hver e flytjandinn ( einmitt!)
...og fullt að annari tónlist sem að flokkast sem sunnudagstónlist!


Eru þetta skilaboð frá einvherjum æðri máttarvöldum um að ég þurfi að Fá mér ipod?!

Ég er eiginlegaa vandræðalega lengi í sturtu eftur æfingar. Því þarf að breyta! En omg hvað súkkulaði herbalife sjeikinn er hriiiikalega góður!

WHOOP!;)

Friday, September 10, 2010

Ég er með mikilvæga tilkynningu sem hreinlega verða að komast út á óravíddir alnetsins: Það er föööööstudaguuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuur!!!:D

Og önnur mikilvæg skilaboð til þeirra sem að ætla út að skemmta sér í kvöld (nei ég verð rólega týpan í kvöld:) ) og ætlið jafnvel að hafa áfengi um hönd: plííís gerið það baaaara fyrir mig að taka textavélina með ykkur á djammið! Það er ekki töff að vera að reyna að höstla einhvern sem mun á endanum ekki skilja stakkt af því sem þið eruð að reyna að segja! Been there done that! Og svo er fólk hissa á því að maður fari einn heim...!

Tobba Marinós er frekar fyndin gella sem heldur úti stórskemmtilegu bloggi sem er alveg fokk fyndið og fjallar mikið um eitt af mínum aðal áhugamálum jú samskipti kynjanna :D Hún skrifaði líka bókina Makalaus sem ég held að sé hreinlega biblía single konunnar um það hvernig þessi deit menning hérna á Íslandi er en hún er svo aaaaaallt öðruvísi en við höldum! Alla vega er Makalaus alveg fokk fyndin og kannski ekki týpísk bók þar sem að fólk verður ástfangið og lifir happily ever after því að ástinni fylgir oft gríðarlegur sársauki. Þannig stelpur lesið Makalaus og þið fáið kannski smá innsýn inn í það hvernig það er að vera hin konan til dæmis en það sjónarhorn hefur maður ekki séð áður í bókmenntum eða bara almennt yfir höfuð. Ég hafði alla vega ekki fengið þetta sjónarhorn á það hvernig það er að vera viðhald fyrr en ég las Makalaust...og það eina sem ég mun segja um þá innsýn sem ég fékk inn i það hvernig einstaklingi líður þegar hann ákveður að dragast inn í það hvernig það er að vera viðhald er að mig langar alls ekki að verða hin konan!

Thursday, September 09, 2010

Bloggskrif með svefngalsa. Þetta verður eitthvað!

Fór í fyrsta skipti í Hot Yoga í dag en það er eitthvað sem mér er búið að langa til að prófa lengi. Fólk er búið að vera að hæpa Hot Yoga alveg svaðalega upp segja að þetta sé magnað og allt það losi um stress og streitu og það fram eftir götunum. Það er alveg rétt að þetta var mögnuð upplifun-kannski sérstaklega fyrir þær sakir að salurinn var 44 gráður og kennarinn var alveg ógeðslega sáttur með það og sagði bara "því heitara því betra!" Jááá er það? Uuuu okei! Shiiit hvað þetta var heitt. Ég held að besta leiðin til að lýsa þessu er að segja að þetta hafi verið svona spánn á ógeðslega heitum degi á allrar vindkælingar og það gleymdist að kæla bjórinn! Alla vega þá hef eg aldrei svitnað jafn mikið á til dæmis 10 mínútum (tíminn er klukkitími) og ég gerði fyrstu 10 mínúturnar!Dísuss! Og annað sem að pirraði mig ekkert smá og það var þessi öndun-hvað er að frétta með það?! Sko þegar að fólk er að anda svona venjulega þá er ekki eins og að ryksugan fari í gang heima hjá því en í Yoga er sagt "anda inn" og allir fara með hendurnar upp í loft svo er sagt "anda frá" og allir fara með hendurnar upp aftur og það er eins og það kvikni á ryksugunni. Nei í alvöru hvað er málið með þessi öndunar hljóð?! Ég þurfti alveg að passa mig á því að missa mig ekki úr hlátri. En ég er ekki að segja að ég mæli ekki með þessu ég á örugglega eftir að skella mér aftur í Hot Yoga því að þetta er öðruvísi en til dæmis þeir tímar sem að voru í gangi á sama tima og Hot Yoga tíminn þar sem að Hot Yoga tónlistinn var svona slökunar hugleiðslu eitthvað á meðann í hinum tímunum var dúndrandi techno í gangi. Og Létt Bylgjan í tækjasalnum...það er svo hresst að vera á brettinu kannski á 9 eða eitthvað (miða við minn hraða!) alveg að klára það sem maður ætlar að klára á brettinu þann daginn og maður heyrir bara Wet wet wet í græjunum I feel it in my finger i feel it in my toes...það er svo hresst! Og lyfta svo við You once you twice three times a lafy...hef miklar efasemdir um það að Létt Bylgjan sé málið í ræktinni! Svona í alvöru!

En allir klárlega að prófa Hot Yoga;) Síðan á maður að prófa allt-alla vega einu sinni ;) Og já ég er búin að mæta í ræktina kl hálf 7 að morgni og nei það er ekki að fara að gerast aftur!

OMG Vala Grand er að fara á kostum. Hún sem sagt rölti sér inn í næsta apótek og keypti sér sérstakt píku sjampó...stopp hér! Er til sérstakt sjampó fyrir píkur?!?! OMG! „Ég er alltaf að læra eitthvað nýtt fyrir píkuna mína.“ Já greinilega ég er búin að vera með píku í heil 24 ár og hafði ekki huuuugmynd um það það væri til eitthvað sérstakt kjallarasjampó!! Ó looord!

En brandarinn var kannski meira sá að pabbi hennar þvið sér um hausinn með þessu sérlega píkusjampói...já ég hefði dáið!! Akkuru í ósköpunum fer manneksjan ekki einu sinni í kerfi yfir því?! Ó loooord! Þegar kemur að mér og foreldrum mínum og einhverju svona rugli þá dey ég!

Monday, September 06, 2010

Mér finnst ég hreinlega verða að koma eftirfarandi tilkynningu á framfæri við umheiminn: Ég hata mánudaga!!! Og það frá mínum innstu hjartarótum! Sem sagt dagurinn í dag hefur ekki verið neitt til að hrópa húrra fyrir og það skrifast allt á þá staðreynd að það er mánudagur-og kannski veðrið! Meina í alvöru er ekki hægt að spóla bara yfir mánudaga? Nei ég bara spyr! Alla vega væri ég alveg til í það!

Fín helgi. Sem var þannig saman sett að það var djamm á föstudeginum sem var svona líka athyglisvert meina er það ekki athyglisvert að verða nánast vitni að ástarathlotum á skemmtistað í Reykjavík!En shiiiitt hvað það móment var fyndið! Síðan annað sem var athyglisvert var samtal sem ég átti við mann sem var eiginlega svoooooldið mikið drukkinn á skemmtistað á 101 og það var eitthvað á þessa leið:

Hann horfir á mig eiginlega alveg out of it en segir svo:

Fulli gæjinn: Mig langar bara að elskast með þér.
Edrú gellan: Haaa?!
Fulli gæjinn: Ég þarf að fá fullnægingu!!
Edrú gellan: uuu sæææll!!
Fulli gæjinn: Eða nei ég sendi þér bara jólakort!! Og labbaði í burtu!!


Og þetta er ekki eina samtalið sem ég hef átt við karlmann á skemmtistað sem hefur verið álíka gáfulegt. Svo er fólk hissa á því að maður kjósi það að fara einn heim...einmitt!

En það er eitthvað svo himneskt við það að koma á Selfoss eftir gott djamm (sérstaklega þegar maður veit að maður mun ekki nenna að djamma á Selfossi!) og krassa á sófanum fyrir framann flatskjáinn og horfa á endursýningar á stöð 2 og svo entertainment tonight þáttinn sem er alltaf sýndur-ég reyndar tók upp á því að sofa yfir endursýningunum þessa helgina enda búin að sjá Ameríska drauminn kvöldið áður en það var samt sem áður mjöööööög ljúúft!;)

Ég verð í 38 einingum þessa önn-OMG! En það verður bara áskorun :D

Thursday, September 02, 2010

Ég á það til að vera flippuð. Eiginlega alveg ógeðslega flippuð. Það flippuð að það nær
ekki nokkuri átt. Og í hádeginu í gær tók ég einmitt eitt svona flippkas þegar ég ákvað að skella mér í ljós í fyrsta sinn í heil 10 ár! Fliiiippað i knooow!:P En ég varð eiginlega fyrir smá vonbrigðum verð ég að segja. Ég var búin að spyrja fólk hvort að ég ætti ekki vera búin að setja á mig sólarvörn eða eitthvað áður en ég færi í bekkinn til að brenna nú alveg örugglega ekki (ég var hálf bleik eftir einn sólardaginn í sumar...sérlegt!) en ég fékk rök á móti því að ég ætti ekki að gera það (yfirleitt óprenthæf rök sem að eiga ekki heima á eins dönnuðum vettvangi og þessum...). Okei ég sem sagt fór í bekkinn í alveg heilar 12 mínútur (ég er svo mikil hetja!) og það er ekki einu sinni litur!! Hvað er það?! Ég varð fyrir geðveikum vonbrigðum! Meina ég ákvað að skella mér í bekkinn á miðvikudegi til þess að líta nú ekki út eins og humar á djamminu annað kvöld (já mammma ég er að fara á djammið annað kvöld...) en nei...en hérna er eitthvað mikið atriði að loka ljósabekknum?

Ég hef ákveðið að vera úbeeeeer skipulagða gellan á þessari önn ekki seinna vænna þegar maður er að fara að skrifa bjéééé aaaa og svona. En samt er ég búin að segja þetta síðan ég var í menntó en það hefur aldrei almennilega gengið þar sem að ég er svo laaangt frá því að vera skipulögð! Akkuru fékk eg enga andsskotans skipulags hæfileika í vöggugjöf?! Þetta er ekki einu sinni sniðugt! Á meðan að sumir eru aðeins of skipulagðir (þekki alveg svoleiðis fólk) þá hef eg ekki neina hæfileika þegar kemur að því að þurfa að skipuleggja sig. Og það kemur sér illa til dæmis þegar maður er að flytja. En þá komum við að öðrum stórum galla sem er þaðað ég kann ekki að pakka niður í tösku. Er ekki í alvöru málið bara að henda einhverju einhvern veginn ofann í tösku þó að það verði allt krumpað þegar það er tekið upp úr töskunni aftur? Það að kunna ekki að pakka er líka einn stór ókostur þegar kemur að flutningum. Láááátið mig þekkja það!

Baggalútur er kominn aftur í loftið-loksins;) whooop! (whoop þetta er til merkis um einlæga gleði)

WHOOP!:D