Bloggskrif með svefngalsa. Þetta verður eitthvað!
Fór í fyrsta skipti í Hot Yoga í dag en það er eitthvað sem mér er búið að langa til að prófa lengi. Fólk er búið að vera að hæpa Hot Yoga alveg svaðalega upp segja að þetta sé magnað og allt það losi um stress og streitu og það fram eftir götunum. Það er alveg rétt að þetta var mögnuð upplifun-kannski sérstaklega fyrir þær sakir að salurinn var 44 gráður og kennarinn var alveg ógeðslega sáttur með það og sagði bara "því heitara því betra!" Jááá er það? Uuuu okei! Shiiit hvað þetta var heitt. Ég held að besta leiðin til að lýsa þessu er að segja að þetta hafi verið svona spánn á ógeðslega heitum degi á allrar vindkælingar og það gleymdist að kæla bjórinn! Alla vega þá hef eg aldrei svitnað jafn mikið á til dæmis 10 mínútum (tíminn er klukkitími) og ég gerði fyrstu 10 mínúturnar!Dísuss! Og annað sem að pirraði mig ekkert smá og það var þessi öndun-hvað er að frétta með það?! Sko þegar að fólk er að anda svona venjulega þá er ekki eins og að ryksugan fari í gang heima hjá því en í Yoga er sagt "anda inn" og allir fara með hendurnar upp í loft svo er sagt "anda frá" og allir fara með hendurnar upp aftur og það er eins og það kvikni á ryksugunni. Nei í alvöru hvað er málið með þessi öndunar hljóð?! Ég þurfti alveg að passa mig á því að missa mig ekki úr hlátri. En ég er ekki að segja að ég mæli ekki með þessu ég á örugglega eftir að skella mér aftur í Hot Yoga því að þetta er öðruvísi en til dæmis þeir tímar sem að voru í gangi á sama tima og Hot Yoga tíminn þar sem að Hot Yoga tónlistinn var svona slökunar hugleiðslu eitthvað á meðann í hinum tímunum var dúndrandi techno í gangi. Og Létt Bylgjan í tækjasalnum...það er svo hresst að vera á brettinu kannski á 9 eða eitthvað (miða við minn hraða!) alveg að klára það sem maður ætlar að klára á brettinu þann daginn og maður heyrir bara Wet wet wet í græjunum I feel it in my finger i feel it in my toes...það er svo hresst! Og lyfta svo við You once you twice three times a lafy...hef miklar efasemdir um það að Létt Bylgjan sé málið í ræktinni! Svona í alvöru!
En allir klárlega að prófa Hot Yoga;) Síðan á maður að prófa allt-alla vega einu sinni ;) Og já ég er búin að mæta í ræktina kl hálf 7 að morgni og nei það er ekki að fara að gerast aftur!
OMG Vala Grand er að fara á kostum. Hún sem sagt rölti sér inn í næsta apótek og keypti sér sérstakt píku sjampó...stopp hér! Er til sérstakt sjampó fyrir píkur?!?! OMG! „Ég er alltaf að læra eitthvað nýtt fyrir píkuna mína.“ Já greinilega ég er búin að vera með píku í heil 24 ár og hafði ekki huuuugmynd um það það væri til eitthvað sérstakt kjallarasjampó!! Ó looord!
En brandarinn var kannski meira sá að pabbi hennar þvið sér um hausinn með þessu sérlega píkusjampói...já ég hefði dáið!! Akkuru í ósköpunum fer manneksjan ekki einu sinni í kerfi yfir því?! Ó loooord! Þegar kemur að mér og foreldrum mínum og einhverju svona rugli þá dey ég!
1 comment:
hehe froken djammstrumpur ÞU ert snillingur
Post a Comment