Ég á það til að vera flippuð. Eiginlega alveg ógeðslega flippuð. Það flippuð að það nær
ekki nokkuri átt. Og í hádeginu í gær tók ég einmitt eitt svona flippkas þegar ég ákvað að skella mér í ljós í fyrsta sinn í heil 10 ár! Fliiiippað i knooow!:P En ég varð eiginlega fyrir smá vonbrigðum verð ég að segja. Ég var búin að spyrja fólk hvort að ég ætti ekki vera búin að setja á mig sólarvörn eða eitthvað áður en ég færi í bekkinn til að brenna nú alveg örugglega ekki (ég var hálf bleik eftir einn sólardaginn í sumar...sérlegt!) en ég fékk rök á móti því að ég ætti ekki að gera það (yfirleitt óprenthæf rök sem að eiga ekki heima á eins dönnuðum vettvangi og þessum...). Okei ég sem sagt fór í bekkinn í alveg heilar 12 mínútur (ég er svo mikil hetja!) og það er ekki einu sinni litur!! Hvað er það?! Ég varð fyrir geðveikum vonbrigðum! Meina ég ákvað að skella mér í bekkinn á miðvikudegi til þess að líta nú ekki út eins og humar á djamminu annað kvöld (já mammma ég er að fara á djammið annað kvöld...) en nei...en hérna er eitthvað mikið atriði að loka ljósabekknum?
Ég hef ákveðið að vera úbeeeeer skipulagða gellan á þessari önn ekki seinna vænna þegar maður er að fara að skrifa bjéééé aaaa og svona. En samt er ég búin að segja þetta síðan ég var í menntó en það hefur aldrei almennilega gengið þar sem að ég er svo laaangt frá því að vera skipulögð! Akkuru fékk eg enga andsskotans skipulags hæfileika í vöggugjöf?! Þetta er ekki einu sinni sniðugt! Á meðan að sumir eru aðeins of skipulagðir (þekki alveg svoleiðis fólk) þá hef eg ekki neina hæfileika þegar kemur að því að þurfa að skipuleggja sig. Og það kemur sér illa til dæmis þegar maður er að flytja. En þá komum við að öðrum stórum galla sem er þaðað ég kann ekki að pakka niður í tösku. Er ekki í alvöru málið bara að henda einhverju einhvern veginn ofann í tösku þó að það verði allt krumpað þegar það er tekið upp úr töskunni aftur? Það að kunna ekki að pakka er líka einn stór ókostur þegar kemur að flutningum. Láááátið mig þekkja það!
Baggalútur er kominn aftur í loftið-loksins;) whooop! (whoop þetta er til merkis um einlæga gleði)
WHOOP!:D
No comments:
Post a Comment