Saturday, September 18, 2010

Ég er þannig manneskja að þegar það er eitthvað alveg að fara að gerast í lífi mínu sem er spennandi og skemmtilegt eitthvað sem felur í sér mikla gleði mikið grín og kannski örlítið djamm þá breytist ég í lítinn krakka í dótabúð (eða kannski í nammibúð) og líf mitt verður alveg heltekið af því! Og líf mitt þessa dagana er einmitt litað af einum sklíkum viðburði sem mun eiga sér stað í næstu viku en á fimmtudaginn byrjar OKTÓBERFEST!! Ó mææææ gad 3000 manns í tjaldi að drekka bjór-það er eitthvað sem bara getur ekki klikkað! Alla vega þá klikkaði það ekki í fyrra ég meina DIKTA og Ensími halló það er eitthvað sem getur ekki klikkað! Eini ókosturinn kannski við OKTÓBERFEST er þessu hætta sem er á því að fá bjór í hausinn-en ég fékk væææænann slurk í hausinn af bjór á OKTÓBERFEST í fyrra-eeeelska það! Bara elska að vera á djamminu og fá bjór eða annað áfengi yfir mig-það er á þannig mómentum sem maður veltir því fyrir sér af hverju í andskotanum er ég að hafa mig til ef ég fæ nokkur bjórglös yfir mig?! En eitt sem er líka óþolandi er að ég lenti einu sinni í því að vera úti að skemmta mér fór á barinn og keypti með coke. Ég var búin að labba kannski 10 skref geðveikt happý eitthvað með glasið mitt þegar að það var einhver sem rakst utan í mig sem gerði það að verkum að ég missti glasið í gólfið! Jeeeess!!

Hafiði einhvern tíma velt því fyrir ykkur hvað það eru margir lítrar af áfengi á gólfinu á skemmtistöðum.

Slapp við Létt Bylgjuna í ræktinni í gær-ég fór í Hádegispúl!

Lykilorðin í minu lífi er djamm og ræktin-bíddu er ég ekki að skrifa Bjééé aaa? Er það ekkert issue?!

No comments: