Ég er með mikilvæga tilkynningu sem hreinlega verða að komast út á óravíddir alnetsins: Það er föööööstudaguuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuur!!!:D
Og önnur mikilvæg skilaboð til þeirra sem að ætla út að skemmta sér í kvöld (nei ég verð rólega týpan í kvöld:) ) og ætlið jafnvel að hafa áfengi um hönd: plííís gerið það baaaara fyrir mig að taka textavélina með ykkur á djammið! Það er ekki töff að vera að reyna að höstla einhvern sem mun á endanum ekki skilja stakkt af því sem þið eruð að reyna að segja! Been there done that! Og svo er fólk hissa á því að maður fari einn heim...!
Tobba Marinós er frekar fyndin gella sem heldur úti stórskemmtilegu bloggi sem er alveg fokk fyndið og fjallar mikið um eitt af mínum aðal áhugamálum jú samskipti kynjanna :D Hún skrifaði líka bókina Makalaus sem ég held að sé hreinlega biblía single konunnar um það hvernig þessi deit menning hérna á Íslandi er en hún er svo aaaaaallt öðruvísi en við höldum! Alla vega er Makalaus alveg fokk fyndin og kannski ekki týpísk bók þar sem að fólk verður ástfangið og lifir happily ever after því að ástinni fylgir oft gríðarlegur sársauki. Þannig stelpur lesið Makalaus og þið fáið kannski smá innsýn inn í það hvernig það er að vera hin konan til dæmis en það sjónarhorn hefur maður ekki séð áður í bókmenntum eða bara almennt yfir höfuð. Ég hafði alla vega ekki fengið þetta sjónarhorn á það hvernig það er að vera viðhald fyrr en ég las Makalaust...og það eina sem ég mun segja um þá innsýn sem ég fékk inn i það hvernig einstaklingi líður þegar hann ákveður að dragast inn í það hvernig það er að vera viðhald er að mig langar alls ekki að verða hin konan!
No comments:
Post a Comment