Maður er alltaf að fá ráðleggingar frá fólki um það sem maður á að gera og það sem maður á ekki að gera og einnig ráðleggingar um það hvað ber að varast svo sem eins og passaðu þig á bílunum farðu varlega yfir Heiðina (ef maður er á leiðinni í Borgina) og ef maður var yngri þá var mamma vön að segja Passaðu þig á strákunum. Í gærkvöldi var 1sti í Októberfest og áður en góð vinkona min signaði sig út af msn þá fékk ég þessar ráðleggingar um hluti sem ber að varast:
Skemmtu þér alveg ógeðslega vel í kvöld en í guðanna bænum passaðu þig á öllum baðkörum sem kunna að verða á vegi þínum!
Einmitt!
En 2 í októberfest í kvöld:D whoop!!
1 comment:
hahaha minar raðleggingar eru bestar
Post a Comment