Monday, September 06, 2010

Mér finnst ég hreinlega verða að koma eftirfarandi tilkynningu á framfæri við umheiminn: Ég hata mánudaga!!! Og það frá mínum innstu hjartarótum! Sem sagt dagurinn í dag hefur ekki verið neitt til að hrópa húrra fyrir og það skrifast allt á þá staðreynd að það er mánudagur-og kannski veðrið! Meina í alvöru er ekki hægt að spóla bara yfir mánudaga? Nei ég bara spyr! Alla vega væri ég alveg til í það!

Fín helgi. Sem var þannig saman sett að það var djamm á föstudeginum sem var svona líka athyglisvert meina er það ekki athyglisvert að verða nánast vitni að ástarathlotum á skemmtistað í Reykjavík!En shiiiitt hvað það móment var fyndið! Síðan annað sem var athyglisvert var samtal sem ég átti við mann sem var eiginlega svoooooldið mikið drukkinn á skemmtistað á 101 og það var eitthvað á þessa leið:

Hann horfir á mig eiginlega alveg out of it en segir svo:

Fulli gæjinn: Mig langar bara að elskast með þér.
Edrú gellan: Haaa?!
Fulli gæjinn: Ég þarf að fá fullnægingu!!
Edrú gellan: uuu sæææll!!
Fulli gæjinn: Eða nei ég sendi þér bara jólakort!! Og labbaði í burtu!!


Og þetta er ekki eina samtalið sem ég hef átt við karlmann á skemmtistað sem hefur verið álíka gáfulegt. Svo er fólk hissa á því að maður kjósi það að fara einn heim...einmitt!

En það er eitthvað svo himneskt við það að koma á Selfoss eftir gott djamm (sérstaklega þegar maður veit að maður mun ekki nenna að djamma á Selfossi!) og krassa á sófanum fyrir framann flatskjáinn og horfa á endursýningar á stöð 2 og svo entertainment tonight þáttinn sem er alltaf sýndur-ég reyndar tók upp á því að sofa yfir endursýningunum þessa helgina enda búin að sjá Ameríska drauminn kvöldið áður en það var samt sem áður mjöööööög ljúúft!;)

Ég verð í 38 einingum þessa önn-OMG! En það verður bara áskorun :D

1 comment:

binna said...

eg hata manudaga lika