Sunday, October 31, 2010

Í október(sem er einhverra hluta vegna alveg að verða búin semþýðir á morgunn getur maður sagt að jólin séu í næsta mánuði-maður hatar það ekkert!)voru fimm helgar. Ég djammaði 3 helgar af þessum fimm. Hmmm...

Tuesday, October 26, 2010

Þegar að konum líður illa þá borða þær. Það er bara staðreynd! En kannski ég byrja á byrjuninni.

Ég fór í próf á laugardaginn eins og eg er buin að minnast á áður vakna klukkan sjö og allt það. Mér fannst mér ekki ganga neitt illa í prófinu í sjálfu sér og vonaði bara að þetta myndi nu allt detta min megin. En nei svo kom einkunnin í dag og nei þetta datt ekki mín megin (það vita allir hvað það þýðir). Það voru alveg gríðarleg vonbrigði vegna þess að ég var búin að læra og læra og læra en nei allt kom fyrir ekki! Svekkjandi maður. Og á svona mómentum þá hugsar maður ósjálfrátt að til þess að lækna mestu vonbrigðin þá væri kannski best að gúffa í sig kannski bara eins og einum burger. Og ég sagði það við vinkonu mina sem er rosa dugleg að byrja hjá einkaþjálfara að það yrði sko feitur subway í kvöld hjá mér og hana nú! En hún benti mér á það að þessi osomlí góði sub myndi kannski láta mér líða vel í kvöld en svo á morgunn þá kæmi fitan vinkona held ég allra kvenna í heimsókn! True story!

En ég meina þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég hugsa sem svo ef að á móti blási að til þess að díla við vandamálin þá er lausnin að borða og þá að borða óhollt. Helst gúffa í sig! Og ég hef lent alveg allt of oft í þessari stöðu að kaupa mér eitthvað sem er í óhollari kantinum til þess að díla við vandamálið sem er alls engin lausn-þannig að min lausn í kvöld er að hafa tómatsúpu í dinner og ekki missa trúna á það að ég geti náð þessari eeeelsku tölfræði!

Magnað.

Monday, October 25, 2010

Mánudagurinn er aaaalveg að verða búin thank god-ekki það að ég hef alveg átt verri mánudaga svo sem. En það sem er kannski merkilegt við þennan mánudag er að það er í rauninni annar í kvennafrídegi og hellingur af konum for í bæinn og hafði hátt og allt það í fáránlega ógeðslegu veðri! Þessar konur eru hetjur á meðan að ég beilaði á að keyra í bæinn enda veðrið freeekar ógeðslegt þannig að ég ákvað að beila hreinlega og vera heima bara sæt með maskara og læra! En mér til málsbóta þá var ég að skrifa ritgerð um kvennafrídaginn (vá hvaðég er búin að skrifa þetta orð oft í dag!) 1975-og sagan á bakvið þennan dag er mjög merkileg og öll samstaðan sem að konur sýndu þá og sýndu í dag er eitthvað sem að þekkist ekki annars staðar í heiminum. Og eg vona bara að minn aumingjaskapur að hafa fylgst með þessu í gegnum mbl og visi fyrirgefist-en vá hvað þeim þarna á vísi vantar prófarkalesara! Eeeeen það er allt önnur ella!

Helgin var róleg og fór í próflestur og það að fara snemma að sofa-ég meina ég var komin upp í rúm fyrir kl hálf 10 á föstudagskvöldi-hvað er það!? Og hvað er það að vakna KLUKKAN SJO!! á laugardagsmorgni og já ég þurfti þess vegna þess að ég var að fara í próf! Ég stóð alltaf í þeirri trú að reglurnar væru þannig að kl 7 á laugardagsmorgni ætti maður að vera nýfarin að sofa eða þá að vera sofandi!

En já ég fór á hádegisdeit í hádeginu á föstudaginn og blastaði því á facebook-en ekki hvað. Og þarf ég að taka það fram að ekki var um raunverulegt deit að ræða?! því að kommentið sem að kom á facebook var úúúú þú leyfir okkur nú að fylgjast með-einmitt! Skooo ef að um raunverulegt deit hefði verið að ræða þá hefði því ekki verið blastað á facebook höfum það alveg á hreinu. Það eina sem var ég gangi að ég var að hitta æðislega vinkonu yfir salati og slúðra! Það er hreinlega perfect deit!

En já salatið sem ég pantaði á Krúsinni-ég pantaði skammt fyrir einn en fékk skammt fyrir 2! Ég er að segja ykkar það að ég missti andlitið ofan í salatið mitt þar sem að skammturinn var sko huuuuge!! Ég hef aldrei séð svona riiiiisa salat skammt borinn fram áður-matargatið ég meira að segja leyfði-hvað er ?!

En já eftir tvær róleegar helgar kannski of rólegar helgar verður föstudagskvöldið væntanlega ekki rólegt þar sem að það eru nú halloween og allt kreizi! Og eg er komin með búning sem er met! Ég hef aldrei verið svona viðbjóðslega snemma í þvi að finna mér búning-eða kannski var það hreinlega ákveðið fyrir mer eftir sólarpúðurslysið víðfræga! Með öðrum orðum verð ég skinka og já ég verð víst meeeega skinka-er það ekki ávisun á það hreinlega að fara einn heim?! Ekrki það að það eigi að vgera eitthvað markmið þegar maður feer út að skemmta sér að enda heima hjá einhverju fokkfeisinu heldur á markmiðið að vera að djamma feitt!! Og hana nú!

En talandi um halloweenbuningar þá er inn á heimasíðu einnar kynlifstækjabúðarinnar að finna ýmsar hugmyndir að mis siðsömum búningum *hóst* bæði fyrir karlmenn og konur-og ef að búningarnir fyrir strákana eru skoðaðir er þar að finna Ali G búning sem á að hafa einhver sérleg áhrif á konurnar í svefnherbergisleikjum!

Sérlegt!

Wednesday, October 20, 2010

Iceland Airwaves var um helgina og ég ekki á staðnum-hvað er það?! Skil það ekki! Ég meira að segja að það verði ekki djamm um helgina aðra helgina í röð bara verið að missa sig í því að vera stillta týpan! Ég meina ég er í skóla og því miður þarf að hugsa um það. Svo er lika PRÓF á laugardagsmorgunn kl 10! Gæti maður ekki hugsað sér eitthvað annað til að vera að gera kl 10 á laugardagsmorgni svo sem eins og að hlusta á Simma og Jóa eða bara vera hreinlega sofandi! Þannig að ég er að eyða öllum minum tíma þessa dagana í það að læra fyrir tölfræði (já veiiii!) og í ræktinni og heima sofandi...skemmtilegt líf anyone?! Einmitt!

Þessi bara blastaði því í viðtali að hann hafi endað í orgíu eftir eitthvað kvöldið á airwaves-og líkurnar á því að mamma hans hafi séð fréttina eru mjööööög miklar! Samt fyndið að á jafn virðulegum fréttamiðli og mbl.is sé mest lesna fréttin um orgíu sem að endaði í Breiðholtinu...

Skipulagshæfileikar anyone''

Wednesday, October 13, 2010

Var alltaf svona mikið stuð á FSU böllum í gamla daga?

Dagur 2 í geðsjúkum harðsperrum!! Ekkert meira um það að segja svo sem...

Tuesday, October 12, 2010

Eins og sést á myndunum þá fær þessi alveg hressleika verðlaunin 2010!
Ég ætlaði varla að meika það upp á þriðju hæð á Hlöðunni í dag. Ekki það að ég sé í svona lélegu formi laaangt í frá! Og fyrir utan það að ég fór beint af æfingu á Hlöðuna til að vesenast fyrir Bjéééé aaaa. En neiiii ástæðan er að ég er með allt of miklar harðsperrur i lærunum eftir æfinguna í dag að ég var í alvöru efins um að ég myndi meika það upp á þriðju hæð-ég íhugaði það í alvöru að taka lyftuna! Þaaaaað þýðir bara slæmt ástand!

Ég næstum því hoppaði hæð mína þegar ég kom í ræktina í dag og í salnum ómaði lag með The swedish housemafia sem þýddi bara eitt: Það var ekki lengur stillt á Létt Bylgjuna!! Já mér fannst það æðiii!:P

Bjéééé aaaa könunin var send út í morgunn loooooksins eftir því lík tæknileg vandræði en nú hvet ég bara þá sem hafa fengið könunina senda að svara henni því að það skiptir máli að sem flestir svari og allt það-nei ég segi svona!

Ef að Ronaldo myndi bjóða mér í rómantískan dinner á Lækjarbrekku myndi ég ekki segja nei sko-eini gallinn við Ronaldo er samt að hann spilaði einu sinni með Manchester...

Thursday, October 07, 2010

Skóliiiii! Loksins er maður komin í þennan sérlega skólagír sem var svo skelfilega erfitt að detta í. Enda er allt að gerast hellingur af verkefnum eg er vonandi að fara að massa tölfræðina (*krossa putta*) og já kannski aðalmálið er BA ritgerðin en eftir mikið vesen aaaalla vikuna við að senda þessa könnun upp á nemendaskrá í gegnum K2 forritið (sem er annars voða voða sniðugt ef að maður kann á það!) þá fékk ég það staðfest áðan í gegnum tölvupóst (kem betur að tölvupóstum á eftir...) að könnunin mín verður send út á morgunn;) whoop! Ég fekk alveg pinu fiðring í magann því að það er búið að vera pinu vesen að koma þessari könnun á koppinn en nú er þetta allt að gerast:P Sem þýðir að nú fer maður að leggjast í lestur á heimildum-vú...nei það er ekki það skemmtilegasta í heimi! Sérstaklega ef maður er staddur á Hlöðunni þar sem að heimildirnar sem maður þarf geta verið út um allt og þá meina eg ALLT og Hlaðan er ekki smá í smíðum. Við erum að tala að það væri sennilega hægt að komast gott form við að hlaupa um Hlöðuna í leit að heimildum! og við erum að tala um aðra hæð þriðju hæð fjórðu hæð plús kjallara! Einmitt!

Líf mitt er tölvupóstur. Eða líf mitt er búið að vera þannig alla vega síðustu mánuði eða eftir að þetta BA ævintýri hófst allt saman. Og það er meira að segja þannig að ef að ég er ekki að fá tölvupóst sem ég þarf nauðsynlega þá verð ég pirruð! Talandi um að láta litla hluti sem að skipta akkúrat engu máli stjórna lífi sínu!

Anyway ég hef aldrei sent eins mikið af tölvupósti og ég hef gert síðustu mánuði bara í lífinu og ástandið í inboxinu minu er orðið þannig að ég þarf stundum að leita að póstum sem að ég þarf að svara-það hefur aldrei gerst áður!

Nafnið á bíómyndina sem gerð verður um mína ævi er fundið: Það er ekki eins svalt og Lost in translation og Lost in space heldur verður nafnið Lost in bathtub...einmitt!

Föstudagur á morgunn-það þýðir bara eitt :P haha :P

Saturday, October 02, 2010

Jæææja hvað er að frétta? Jú kannski það helst að ég edrú gellan er komin í djammpásu eftir gærkvöldið vegna djammviskubits! Ekki það að ég hafi verið að gera einhverja geðveika skandala á 101 í nótt enda er eg ekki beint týpan í það að vera upp á borðum dansandi heldur meira svona ég er búin að djamma svo mikið að undanförnu að það er ekki sniðugt-sem er ekki heldur að meika neinn sjens af því að ég veit um fólk sem djammar miiiiiiklu meira en ég! Plús það að ég alltaf edrú er ekki í því að gera einhverja meeeega skandala-eða svona næstum því-hvað er þá málið með þessa sérlegu djammpásu mína? Uuuu góð spurning! Jú ég er í skóla 38 einingum BA og allt það þannig að það er kannski málið að fara að verða ferska týpan um helgar og vera vöknuð níu fara út að hreyfa sig og vera bara hress! Alla vega eitthvað fram eftir októbermánuði-ef þið sæjuð dagbókina mína þá mynduð þið skilja þetta! Uuu sjitt! En gærkvöldið...

Það var svona um 10 leytið sem að ég fékk fluguna í höfuðið (sem er frekar óþægilegt) að það væri kannski bara helvíti gaman að fara út að djamma þannig að ég skrifaði verðandi miðbæjartúttu henni Binnu eftirfarandi skilaboð á msn:

Ágústa: Hérna hverng væri það að skella sér bara á djammið í reykjavík
Brynja: núna?
Ágústa: aha
Brynja: uuu já!
Brynja: let's party in rvk!


Með öðrum orðum þetta er ekkert flókið bara sparsli skellt í smettið á sér engnir skinku tilburðir samt og brunað af stað á 101 Reykjavík með viðkomu í Hveragerði og pikkað upp Binnu og svo var brunað áfram (hmm kannski fullmiklir detailar...). Helsta umræðuefnð á leiðinni var gelgju tónlistin og til ykkar sem eruð að kvarta yfir Justin Bieber æðinu: ég held að það sé ekkert miðað við hveeeeersu mikið ég elskaði Spice girls á sínum tíma!! Ég er að segja ykkur það sá kafli í mannkynssögunni verður aldrei verri en þetta Justin Bieber æði!!

Anyway þá lentum við á 101 (ekki það að við vorum á einhverri flugvél við vorum bara á yaris...) og drulluðum okkur á Hressó þar sem Binna var spurð um skilríki en ekki ég og Binna ætlaði að gefa mér hæ fæv fyrir það að vera spurð um skilríki-ég gaf henni ekki hæ fæv! En við duttum á barinn og fengum okkur mohitó en fyrir þá sem ekki vita þá er mohito osomlí gott-meira að segja líka áfengt sem ég prófaði óvart það er að segja ruglaðist á glasi! Binna horfði á mig og benti mer á það að ég hefði tekið glaasið hennar enda hlaut það að vera því í fyrsta lagi var ekki svona litið í minu glasi þegar ég lagði það frá mér og það var mjööööög greinilega áfengi í því! Það sveif á mig! En okei við fórum af Hressó og kikja á Austur en ákváðum að taka einn hring á Thorvaldsen en sá hringur varði allt kvöldið því að tónlistin á Thorvaldsen var bara geðveik!:D Það er ekkert flóknara en það við misstum okkur á dansgólfinu og ég held að nýja djammlagið okkar sé Paradise city með Guns and Roses:D En ein ráðlegging: ef að vinkona ykkar skorar áykkur að klipa í rassinn á einhverjum heitum gaur ekki klípa í rassinn á honum því númer eitt það er sjúúúúúklega vandræðalegt og nr 2 gaurinn mun senda gellunni svona ertu algjörlega þroskaheft augnaráð! Þessa ráðleggingu fékk ég frá vinkonu minni...

Með öðrum orðum fáránlega skemmtilegt kvöld!!:D whoop!:P

En já komin október wake me up when september endsog allt það og omg ég er ekki frá því að það sé farið að styttast í jólin og markmiðið er það sama og í fyrra eða að vera búin að kaupa allar jólagjafir fyrir próf-sem tókst ekki í fyrra! Bömmer

Í byrjun september í fyrra fékk ég þá spurningu hvort eg væri ekki farin að hugsa um jólagjafirnar og hvort eg væri ekki hreinlega að byrja ap kaupa þær. Mitt svar var bara þetta klasssíska uuu nei!!

En já eftir algjörlega skandalalaust gærkvöld þá er ég komin í sérlega djammpásu! Og ég er ekki að fara á Sálin í Hvíta-hvað er að frétta? Er ég bara að verða gamla konan?!