Tuesday, October 26, 2010

Þegar að konum líður illa þá borða þær. Það er bara staðreynd! En kannski ég byrja á byrjuninni.

Ég fór í próf á laugardaginn eins og eg er buin að minnast á áður vakna klukkan sjö og allt það. Mér fannst mér ekki ganga neitt illa í prófinu í sjálfu sér og vonaði bara að þetta myndi nu allt detta min megin. En nei svo kom einkunnin í dag og nei þetta datt ekki mín megin (það vita allir hvað það þýðir). Það voru alveg gríðarleg vonbrigði vegna þess að ég var búin að læra og læra og læra en nei allt kom fyrir ekki! Svekkjandi maður. Og á svona mómentum þá hugsar maður ósjálfrátt að til þess að lækna mestu vonbrigðin þá væri kannski best að gúffa í sig kannski bara eins og einum burger. Og ég sagði það við vinkonu mina sem er rosa dugleg að byrja hjá einkaþjálfara að það yrði sko feitur subway í kvöld hjá mér og hana nú! En hún benti mér á það að þessi osomlí góði sub myndi kannski láta mér líða vel í kvöld en svo á morgunn þá kæmi fitan vinkona held ég allra kvenna í heimsókn! True story!

En ég meina þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég hugsa sem svo ef að á móti blási að til þess að díla við vandamálin þá er lausnin að borða og þá að borða óhollt. Helst gúffa í sig! Og ég hef lent alveg allt of oft í þessari stöðu að kaupa mér eitthvað sem er í óhollari kantinum til þess að díla við vandamálið sem er alls engin lausn-þannig að min lausn í kvöld er að hafa tómatsúpu í dinner og ekki missa trúna á það að ég geti náð þessari eeeelsku tölfræði!

Magnað.

No comments: