Saturday, October 02, 2010

Jæææja hvað er að frétta? Jú kannski það helst að ég edrú gellan er komin í djammpásu eftir gærkvöldið vegna djammviskubits! Ekki það að ég hafi verið að gera einhverja geðveika skandala á 101 í nótt enda er eg ekki beint týpan í það að vera upp á borðum dansandi heldur meira svona ég er búin að djamma svo mikið að undanförnu að það er ekki sniðugt-sem er ekki heldur að meika neinn sjens af því að ég veit um fólk sem djammar miiiiiiklu meira en ég! Plús það að ég alltaf edrú er ekki í því að gera einhverja meeeega skandala-eða svona næstum því-hvað er þá málið með þessa sérlegu djammpásu mína? Uuuu góð spurning! Jú ég er í skóla 38 einingum BA og allt það þannig að það er kannski málið að fara að verða ferska týpan um helgar og vera vöknuð níu fara út að hreyfa sig og vera bara hress! Alla vega eitthvað fram eftir októbermánuði-ef þið sæjuð dagbókina mína þá mynduð þið skilja þetta! Uuu sjitt! En gærkvöldið...

Það var svona um 10 leytið sem að ég fékk fluguna í höfuðið (sem er frekar óþægilegt) að það væri kannski bara helvíti gaman að fara út að djamma þannig að ég skrifaði verðandi miðbæjartúttu henni Binnu eftirfarandi skilaboð á msn:

Ágústa: Hérna hverng væri það að skella sér bara á djammið í reykjavík
Brynja: núna?
Ágústa: aha
Brynja: uuu já!
Brynja: let's party in rvk!


Með öðrum orðum þetta er ekkert flókið bara sparsli skellt í smettið á sér engnir skinku tilburðir samt og brunað af stað á 101 Reykjavík með viðkomu í Hveragerði og pikkað upp Binnu og svo var brunað áfram (hmm kannski fullmiklir detailar...). Helsta umræðuefnð á leiðinni var gelgju tónlistin og til ykkar sem eruð að kvarta yfir Justin Bieber æðinu: ég held að það sé ekkert miðað við hveeeeersu mikið ég elskaði Spice girls á sínum tíma!! Ég er að segja ykkur það sá kafli í mannkynssögunni verður aldrei verri en þetta Justin Bieber æði!!

Anyway þá lentum við á 101 (ekki það að við vorum á einhverri flugvél við vorum bara á yaris...) og drulluðum okkur á Hressó þar sem Binna var spurð um skilríki en ekki ég og Binna ætlaði að gefa mér hæ fæv fyrir það að vera spurð um skilríki-ég gaf henni ekki hæ fæv! En við duttum á barinn og fengum okkur mohitó en fyrir þá sem ekki vita þá er mohito osomlí gott-meira að segja líka áfengt sem ég prófaði óvart það er að segja ruglaðist á glasi! Binna horfði á mig og benti mer á það að ég hefði tekið glaasið hennar enda hlaut það að vera því í fyrsta lagi var ekki svona litið í minu glasi þegar ég lagði það frá mér og það var mjööööög greinilega áfengi í því! Það sveif á mig! En okei við fórum af Hressó og kikja á Austur en ákváðum að taka einn hring á Thorvaldsen en sá hringur varði allt kvöldið því að tónlistin á Thorvaldsen var bara geðveik!:D Það er ekkert flóknara en það við misstum okkur á dansgólfinu og ég held að nýja djammlagið okkar sé Paradise city með Guns and Roses:D En ein ráðlegging: ef að vinkona ykkar skorar áykkur að klipa í rassinn á einhverjum heitum gaur ekki klípa í rassinn á honum því númer eitt það er sjúúúúúklega vandræðalegt og nr 2 gaurinn mun senda gellunni svona ertu algjörlega þroskaheft augnaráð! Þessa ráðleggingu fékk ég frá vinkonu minni...

Með öðrum orðum fáránlega skemmtilegt kvöld!!:D whoop!:P

En já komin október wake me up when september endsog allt það og omg ég er ekki frá því að það sé farið að styttast í jólin og markmiðið er það sama og í fyrra eða að vera búin að kaupa allar jólagjafir fyrir próf-sem tókst ekki í fyrra! Bömmer

Í byrjun september í fyrra fékk ég þá spurningu hvort eg væri ekki farin að hugsa um jólagjafirnar og hvort eg væri ekki hreinlega að byrja ap kaupa þær. Mitt svar var bara þetta klasssíska uuu nei!!

En já eftir algjörlega skandalalaust gærkvöld þá er ég komin í sérlega djammpásu! Og ég er ekki að fara á Sálin í Hvíta-hvað er að frétta? Er ég bara að verða gamla konan?!

2 comments:

binna said...

gleymdir að nefna það að eg keypti ovart 2 mohitjo handa mer sem eg drakk a mettima

Ágústa Arna said...

óþarfi að segja frá öllum díteilum!:P