Mánudagurinn er aaaalveg að verða búin thank god-ekki það að ég hef alveg átt verri mánudaga svo sem. En það sem er kannski merkilegt við þennan mánudag er að það er í rauninni annar í kvennafrídegi og hellingur af konum for í bæinn og hafði hátt og allt það í fáránlega ógeðslegu veðri! Þessar konur eru hetjur á meðan að ég beilaði á að keyra í bæinn enda veðrið freeekar ógeðslegt þannig að ég ákvað að beila hreinlega og vera heima bara sæt með maskara og læra! En mér til málsbóta þá var ég að skrifa ritgerð um kvennafrídaginn (vá hvaðég er búin að skrifa þetta orð oft í dag!) 1975-og sagan á bakvið þennan dag er mjög merkileg og öll samstaðan sem að konur sýndu þá og sýndu í dag er eitthvað sem að þekkist ekki annars staðar í heiminum. Og eg vona bara að minn aumingjaskapur að hafa fylgst með þessu í gegnum mbl og visi fyrirgefist-en vá hvað þeim þarna á vísi vantar prófarkalesara! Eeeeen það er allt önnur ella!
Helgin var róleg og fór í próflestur og það að fara snemma að sofa-ég meina ég var komin upp í rúm fyrir kl hálf 10 á föstudagskvöldi-hvað er það!? Og hvað er það að vakna KLUKKAN SJO!! á laugardagsmorgni og já ég þurfti þess vegna þess að ég var að fara í próf! Ég stóð alltaf í þeirri trú að reglurnar væru þannig að kl 7 á laugardagsmorgni ætti maður að vera nýfarin að sofa eða þá að vera sofandi!
En já ég fór á hádegisdeit í hádeginu á föstudaginn og blastaði því á facebook-en ekki hvað. Og þarf ég að taka það fram að ekki var um raunverulegt deit að ræða?! því að kommentið sem að kom á facebook var úúúú þú leyfir okkur nú að fylgjast með-einmitt! Skooo ef að um raunverulegt deit hefði verið að ræða þá hefði því ekki verið blastað á facebook höfum það alveg á hreinu. Það eina sem var ég gangi að ég var að hitta æðislega vinkonu yfir salati og slúðra! Það er hreinlega perfect deit!
En já salatið sem ég pantaði á Krúsinni-ég pantaði skammt fyrir einn en fékk skammt fyrir 2! Ég er að segja ykkar það að ég missti andlitið ofan í salatið mitt þar sem að skammturinn var sko huuuuge!! Ég hef aldrei séð svona riiiiisa salat skammt borinn fram áður-matargatið ég meira að segja leyfði-hvað er ?!
En já eftir tvær róleegar helgar kannski of rólegar helgar verður föstudagskvöldið væntanlega ekki rólegt þar sem að það eru nú halloween og allt kreizi! Og eg er komin með búning sem er met! Ég hef aldrei verið svona viðbjóðslega snemma í þvi að finna mér búning-eða kannski var það hreinlega ákveðið fyrir mer eftir sólarpúðurslysið víðfræga! Með öðrum orðum verð ég skinka og já ég verð víst meeeega skinka-er það ekki ávisun á það hreinlega að fara einn heim?! Ekrki það að það eigi að vgera eitthvað markmið þegar maður feer út að skemmta sér að enda heima hjá einhverju fokkfeisinu heldur á markmiðið að vera að djamma feitt!! Og hana nú!
En talandi um halloweenbuningar þá er inn á heimasíðu einnar kynlifstækjabúðarinnar að finna ýmsar hugmyndir að mis siðsömum búningum *hóst* bæði fyrir karlmenn og konur-og ef að búningarnir fyrir strákana eru skoðaðir er þar að finna Ali G búning sem á að hafa einhver sérleg áhrif á konurnar í svefnherbergisleikjum!
Sérlegt!
No comments:
Post a Comment