Skóliiiii! Loksins er maður komin í þennan sérlega skólagír sem var svo skelfilega erfitt að detta í. Enda er allt að gerast hellingur af verkefnum eg er vonandi að fara að massa tölfræðina (*krossa putta*) og já kannski aðalmálið er BA ritgerðin en eftir mikið vesen aaaalla vikuna við að senda þessa könnun upp á nemendaskrá í gegnum K2 forritið (sem er annars voða voða sniðugt ef að maður kann á það!) þá fékk ég það staðfest áðan í gegnum tölvupóst (kem betur að tölvupóstum á eftir...) að könnunin mín verður send út á morgunn;) whoop! Ég fekk alveg pinu fiðring í magann því að það er búið að vera pinu vesen að koma þessari könnun á koppinn en nú er þetta allt að gerast:P Sem þýðir að nú fer maður að leggjast í lestur á heimildum-vú...nei það er ekki það skemmtilegasta í heimi! Sérstaklega ef maður er staddur á Hlöðunni þar sem að heimildirnar sem maður þarf geta verið út um allt og þá meina eg ALLT og Hlaðan er ekki smá í smíðum. Við erum að tala að það væri sennilega hægt að komast gott form við að hlaupa um Hlöðuna í leit að heimildum! og við erum að tala um aðra hæð þriðju hæð fjórðu hæð plús kjallara! Einmitt!
Líf mitt er tölvupóstur. Eða líf mitt er búið að vera þannig alla vega síðustu mánuði eða eftir að þetta BA ævintýri hófst allt saman. Og það er meira að segja þannig að ef að ég er ekki að fá tölvupóst sem ég þarf nauðsynlega þá verð ég pirruð! Talandi um að láta litla hluti sem að skipta akkúrat engu máli stjórna lífi sínu!
Anyway ég hef aldrei sent eins mikið af tölvupósti og ég hef gert síðustu mánuði bara í lífinu og ástandið í inboxinu minu er orðið þannig að ég þarf stundum að leita að póstum sem að ég þarf að svara-það hefur aldrei gerst áður!
Nafnið á bíómyndina sem gerð verður um mína ævi er fundið: Það er ekki eins svalt og Lost in translation og Lost in space heldur verður nafnið Lost in bathtub...einmitt!
Föstudagur á morgunn-það þýðir bara eitt :P haha :P
No comments:
Post a Comment