Ég vil bæði lifa og vona ég vil brenna upp af ást ég vil lifa með þér svona ég vil gleðjast eða þjást. Meðan leikur allt í lyndi líka þegar illa fer meðan lífið heldur áfram þá vil ég vera hjá þér
Sunday, November 14, 2010
Ég var svona við það að reyna að taka Létt Bylgjuna í sátt svona efttir að þeir byrjuðu að spila jólalög í dag eða réttara sagt á miðnætti. En það eru farnar að renna á mig tvær grímur með það. Á svona tuttugu tímum er eg búin að heyra svona tuttugu mismunandi útgáfur af laginu Christmass song og búin að heyra lagið Do they know its christmass og eitthvað sykurhúðað Clay Aiken lag alveg þrisvar sinnum! Ég jólafríkið er alveg sátt með það að það sé byrjað að spila jólalög svona snemma (ég byrjaði smá í síðasta mánuði!) en eg er svo langt í frá sátt með það að heyra White Christmss í mismunandi útgáfum á einum og sama klukkutímanum! Þannig að þessi tilraun til að taka Létt Bylgjuna í sátt er ekki alveg að gera sig svona á fyrsts sólahringnum. En það er samt gott að hlusta á Létt Bylgjuna þegar maður er að vinna í ritgerðum þannig að ætli ég láti mig ekki hafa það bara...sjáum til!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment