Wednesday, November 10, 2010

Ég veit ekki hvort ég geti sagt það nógu oft en Baggalútur er yndislegt fyrirbæri. Ég sem sagt var að kaupa mér nýja jóladiskinn í morgunn. Síðan smellti ég honum í græjurnar og ætlaði svona að rúlla í gegnum hann á leiðinni í ræktina. Sem ég og gerði. Og ég er að segja ykkur það að það er ekki gott að keyra í hláturskasti! Omg hvað mennirnir eru fyndnir! Og ekki nóg með það að mér finnst geðveikt sexý franska lagið sjúdem þarna ekki svo mikið sexý lengur-þið verðið að kaupa diskinn ég fer ekki að segja brandarann herna en omg ég gjörsamlega missti það úr hlátri undir stýri!! Eru ekki einhver umferðarlög sem banna það? En alla vega þá er nýji Baggalúts jóladiskurinn eitthvað sem á að vera skyldueign á öllum heimilum! Er ekki málið að setja það í stjornarskránna?

Jón Gnarr er fyndnastur (meina viðtalið við hann í kastljósinu var óborganlegt ekki einu sinni DO mun nokkurn tíma toppa það!) svo Pétur Jóhann (það er eitthvað svo endalaust fyndið við það að sjá manninn hlaupa!) og svo Baggalútur (baggalútur.is ef að þið eruð ekki sannfærð!)

Fór í andlitsvax í morgunn. Sem er ekki svo sem frá sögu færandi nema þegar ég var að setjast í stólinn og láta rífaa hárin úr andlitinu á mér þá var bakið á stólnum eitthvað laust og ég steypist aftur á bak í stólnum!Og konan sem var að fara að vaxa mig hún að sjálfsögðu fékk áfall en hún náði að grípa mig í tæka tið þannig að ég endaði ekki á gólfinu! Sem er kostur.

En ég skora á karlmenn að láta vaxa á sér andlitið. Það er alls ekki gott og eftir að hafa látið vaxa á mér andlitið langar mér akkúrat ekkert í brasilian wax-ég hef í alvöru heyrt þvílíkar hryllingssögur að mér verður illt á ákveðnum stöðum! Aldrei í lífinu!

Er ekki hægt að banna þetta Justin Bieber kvikindi með lögum? Þegar ég kveikti á útvarpinu í morgunn og Það fyrsta sem ég heyrði var lag með þessu Bieber kvikindi! Ég hef verið meira happy að morgni til sko...

Ahh hvað er gott að geta skrifað svona án þess að þurfa að vitna í heimildir! Ég meina ég skrifa varla neitt þessa dagana án þess að vitna í heimildir! Ég veit alveg um margt skemmtilegra sko...

Bókin Dömusiðir er hér með komin á jólagjafalistann minn:P whoop!

No comments: