Wednesday, November 24, 2010

Hlutir sem má aldrei, aldrei, ALDREI segja í rúminu!

Ef þú vilt drepa niður stemninguna í rúminu mæli ég hiklaust með þessum setningum:



Bannað fyrir karlmenn:


Þú getur látið laga þetta

„Hann skýtur...og skorar!“ (Eða aðrir fáránlegir íþróttafrasar)

Oh, hvað ég væri til í einn kaldan núna

Þú ert næstum því eins góð og mín fyrrverandi

Tekuru Vísa?

Sleikja, ekki bíta!

Gætiru flýtt þér? Leikurinn byrjar eftir 5 mínútur

Viltu halda áfram?

Þú ert loðin á rassinum

Finnur þú líka fiskifýlu?

... og engar athugasemdir um rakstur á prívatstöðum



Bannað fyrir konur:


Ertu til í að fara í sturtu fyrst?

Ertu kominn inn? Ég finn ekkert!

Hættu að gretta þig svona!

Komdu hingað, tíkin þín

Ertu alltaf svona góður eða er ég extra heppin í kvöld?

Klamidía

Veistu, pabbi og mamma eru geðveikt spennt að hitta þig

Djís...þú ert með stærri brjóst en ég!

Vaktiru mig fyrir þetta?

Hættu þessu, ég geri þetta sjálf

Vissiru að amma mín dó í þessu rúmi?


Kvikindið sem ég er væri samt til í að sjá svipinn á gæjanum ef að maður myndi segja vissiru að amma mín dó í þessu rúmi-ég þyrfti alla vega ekki þá að velta því fyrir mér hvort gæjinn myndi hringja aftur!

Þarf svo að fara að henda inn almennilegu bloggi sem mun innihalda nákvæmalýsingu á spinning tímanum sem ég fór í um daginn-það var ekki létt! Dísöss kræst!

Mánuður til jóla:P whooop!

No comments: