Wednesday, December 22, 2010

Ég er svoldið forvitin. Okei ég er vandræðalega forvitin týpa svona stundum. Sérstaklega á þessum árstíma. Og eiginlega má segja um mig að ég sé pakkaperri þvi að mér finnst gaman að handleika pakka sem eru í umbúðunum-ekkert kynferðislegt samt! En okei í gærkvöldi þá var mamma að pakka inn gjöfum sem áttu að fara til Reykjavíkur. Hún setti þá inn í litla herbergið herna á heimilinu. Ég ætlaði að vera voða voða lúmst og aðeins að koma við pakkana bara svona af því bara en nei mamma labbaði fram hjá herberginu og gómaði mig við það að þukla á pökkunum!:O Það var meeeega vandræðalegt! Mamma alveg: "Ágústa ertu að káfa á pökkunum?! ég reyndi að náttúrulega að halda því fram að ég væri saklaus en það er pínu erfitt þegar maður er gripinn við það að þukla pakka!

Og í allt gærkvöld fékk ég að heyra það að ég væri ógeðslega forvitin-sem er satt! Foookk!

O mæææ hvað Tiger er dásamleg snilld;)Ég get hæglega misst mig þar inn í og ef að maður þarf að kaupa litla pakka svona tækifærisgjafir þá fá valkvíðasjúklingar eins og ég kast því að stundum er of margt sniðugt til í búðinni og manni langar til að kaupa ALLT! En eg er búin að kaupa pakka til að mæta með í pakkaleikinn í næstu viku og það er ekki það sama og ég ákvað að kaupa í síðustu viku! Það hefði verið mjög fyndið að mæta með Babar á DVD! Hmm þarf maður ekki að eignast svoleiðis?

No comments: