Ég fór inn í búð hérna um daginn sem er kannski ekki frásögu færandi svona í miðjum próflestrinum. Nema hvað (okei sumir sem munu lesa þetta munu bara hugsa váá hvað þetta er illa fordómafull píja en þeir um það) að á eftir mér á kassanum er gaur nýkomin úr hesthúsinu-og já...jújú okei hestalykt er góð á réttum stað og réttur staður er ekki í Bónus ekki í Noatúni eða í krónunni og alls alls alls ekki á djamminu! Ég er að segja ykkur það að ég hef alveg lent í því að vera á djamminu kannski á dansgólfinu og það er einhver að dansa í næsta nágrenni við þig sem er kominn beint úr hesthúsinu og beint á 800-get ekki sagt að það sé smekklegt! Alla vega færi eg ekki heim með þeim gaur svo við höfum það alveg á tææææru! Mér finnst það bara ekki eiga heima á svona stöðum eins og í Bónus já eða heima þegar maður kemur inn á heimili þar sem að hestafólk býr og það er allt andandi af hestalykt. Og þá meina eg allt fötin bíllinn ALLT! Þetta allt saman fór í gegnum hausinn á mér fordómafullu píjunni á meðann einhver strákgrey sem var bara að sinna sínu áhugamáli í mesta sakleysi var að kaupa egg! En eitt get eg sagt að draumaprinsinn minn er alls ekki hestamaður-kannski af þvi að ég myndi sennilega detta af baki þegar hann kæmi á hvíta hestinum!
En eitt vandræðalegt-eg er svo lítil að þegar ég er að skafa snjó af framrúðunni á bílnum mínum þá verður alltaf snjór eftir á miðri framrúðunni! Hvað er það?!
Síðasta prófið á morunn!!:D Sjitt hvað ég mun bilast úr hamingju:P whooooop!
No comments:
Post a Comment