Eitt sem að einkaþjálfarar þessa lands mættu kannski taka inn í sitt prógramm er að koma fólki hratt og örugglega í gegnum sturtuna. Því ég til dæmis er lengi í sturtu. Okei mjöööööög lengi í sturtu. Okei fáránlega lengi í sturtu! Og það er að versna ef að eitthvað er eg er að verða lengur og lengur í sturtu. Meina ég tók upp á því að safna hári það síkkar einhverra hluta vegna sem gerir það að verkum að maður verður alltaf lengur og lengur að blása það og græja og gera eeeeeeeeen stundum er bara hægt að vera of lengi. Meina það er ekkert eðlilegt við það að vera hátt í klukkutíma að fara í sturtu henda sjampói og hárnæringu í hausinn á sér andlitsmjólk á fésið og sápu á kroppinn ( Christina Agilera showergelið er að gera góða hluti...) síðan er að klæða sig fékk tvær tegundir af body lotion í jólafjöf þannig að prógrammið lengist með þvi siðan er að blása sig ekki einu sinni heldur tvisvar og setja hárfroðu og eitthvað annað efni sem á að gera eitthvað voða sniðugt fyrir hárið á manni! Plús mála sig! Okei bara með því að skrifa þetta er eg orðin þreytt! En þetta gerir maður á hvverjum degi til þess að vera ekki lömuð útlitslega ser og eyðir í það hellings tíma! En mer finnst það sérstaklega vandræðalegt eftir æfingar hvað ég er lengi í sturtu! Ég hefði alveg verið til í það ef Heiðrún einkaþjálfari hafi tekið boot vamp á þetta í sturtu klefanum eftir æfingar: KOMA SVO ÞÚ HEFUR AÐEINS 3 MÍNÚTUR Í STURTUNNI TIL ÞESS AÐ ÞVO Á ÞER HÁRIÐ OG KROPPINN EF EKKI ÞÁ ÞARFTU AÐ TAKA 100 FROSKAHOPP! Og ég þarf aðeins og sturtu bootcamp að halda til þess að koma mer í gegnum sturtu klefann á einhverjum eðlilegum tíma!
Svo fékk ég Dömusiði í jólagjöf en það er bók sem kennir svona gellumeins og mer að vera dama...einmitt! Til þess að vera dama þarf eg vist að ganga á hælum sem er í mínum augum hreinlega drápstæki þannig takk bleeeess! En við lestur þeirrar bókar þá varð eg skyndilega miklu lengur að öllu og ef að maður færi eftir öllum þeim bjútíráðum sem gefin eru í þeirri bók þá held eg að ef að ég ætlaði að fara í partý kl átta á laugardagskvöldi yrði eg að byrja að græja mig að minnsta kosti kl tíu um morgunninn! Og það er of mikið!!
No comments:
Post a Comment