Jááá þið segið það! Hvað er að frétta með þetta veður?! Er þetta veður virkilega að fara að koma í veg fyrir það að ég geti fagnað á 101 í kvöld?! Neiii eg er herna að taka svo mikið secret hérna um að ég komist í bæinn í kvöld eða seinna partinn (er sem sagt á selfossi) að það er ekki sniðugt! Og það sem ég á við með því að fagna í kvöld er að sjálfsögðu að fagna próflokum og einkuninni í aðferðafræði! Jáá ég náði aðferðafræðinni þó svo að það eina sem ég hugsaði eftir prófið var andskotans djöfulsins helvitis og allt það af því að mér gekk svo illa í prófinu! Ég var nánast með það á tæru að ég hefði fallið. Og ég ætlaði heldur ekki að þora að kíkja á einkunina og gera það bara eftir jól eeeeen eg er svo fegin að hafa kíkt og séð það að ég hafi náð prófinu!Þvílík gleðiiiii! Og ég hreinlega sveiiiif! Hreinlega besta Jólagjöf sem ég gat gefið sjálfri mér eg er að segja ykkur það! Svo eftir áramót ætla ég að gefa sjálfri mer það að komast í form! Maður á ekki að hugsa svona en hey það eru að koma jól!:P Hehe
En já ég eyddi öllum miðvikudeginum i að versla og jááá eg held að þetta sé bara allt að verða komin kjóllinn komin-eg var samt ekki alveg að þora að taka einhverja áhættu þegar kom að því að velja lit á kjólnum en hann er samt ekki svartur sem er miiiikil framför! Hann er blár! Reyndar dökkblár en hey það er annað en svart! En omg það að horfa yfir litina á kjólunum var hálf sorglegt engin gleði eða neitt heldur mest megnis allt í jarðafaralitunum! Svart og grátt takk fyrir var allls ráðandi! Éghef alveg lent í þvi labba inn í hresst partý á laugardagskvöldi og án djóks það voru aaaallir í svörtu! Engnir í lit allir eins og þeir væru að fara í jarðarför...einmitt!
Keypti líka skó:D Og ég hef aldrei sagt etta áður eftir að hafa keypt mér nýja skó en omg i'm in love with my new shoes :D Og nei eg er ekki svona skófrík sem má ekki labba inn í einhverja skóbúð og labba út með 40 þúsund króna skó í hvert einasta skipti! Og ég held að svona fylltir hælar séu klárlega málið það er að segja ekki pinna hælar heldur fylltir hælar sem lyfta manni aðeins upp af jörðinni-og ekki veitir mér semí dvergnum af því! Það var tekin mynd af mer og tveimur ónefndum vinkonum minum á halloween sem er eiginlega...já! Orðum það bara þannig að ég skil ekki vel hávaxnar gellur sem var samt á gjeeeeeðveika hæla! Þá fyrst sést það hvað ég er ógeðslega lítil!! Sjitt!!
Ef að (Ingó og ) Veðurguðirnir hleypa mer til Reykjavíkur sem eg vona því eg er að deyjaaaaa mig langar svooooooo að djammaaaaaaa þá vona ég að það verði ekki hellt yfir mig jafn mikið af áfengi og gert var um síðustu helgi! Dísus Kræst! Og eru bytturnar þarna niðri í bæ (er eg ekki ein af þeim svo sem...?) hressar með það að troða sér á barinn splæsa í gin og tónik sem eru örugglega ekki það ódyrasta og hella því svo yfir einhvern á dansgolfinu? Hvað ér eg að spá í það?! Það er ógeðslegt að lykta eins og fokking Gin og tónik! Tala ekki um það eflöggan myndi stoppa mann..."hérna varst þú að drekka vinan?" "ég?? neiii!" " en þú angar af gin og tónik?" Já það var einhver hress sem sturtaði úr glasinu sínu yfir mig-ég er ekki sú hávaxnasta!" "Já einmitt...ætlaru að koma með okkur niður á stöð!" Ef maður myndi lenda nu í þessum aðstæðum þá vona ég að löggurnar væru fokking heitar!
En já ég er á fullu á secret herna: DJAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAMM!!!! :D
No comments:
Post a Comment