Wednesday, December 01, 2010

Námsmenn og próf

Tvisvar á ári hverfa námsmenn af götum borgarinnar. Þá má finna einn og einn útaugaðan og skítugan í ljótum joggingbuxum ráfandi um, eirðarlausan og ringlaðan. Með hárflóka taugatrekktan og skjálfandi eftir of mikið kaffi, of marga orkudrykki og of lítinn svefn. Hann hrifsar til sín hamborgarann, sælgætið ,meiri birgðir af magic og skríður aftur í bælið sitt. Þetta er neminn í próflestri.

Í nokkrar vikur á ári lifir hann í einagrun, sefur ekki, baðar sig ekki en blæs út af nammiáti og skyndibita, þvi einhvernveginn verður að þrauka þetta tímabil þar sem allri heimsins vitneskju skal troða í einn lítinn heila og tolla þar norkkurnveginn framyfir próf. Hann finnur samt hvernig vitneskjan lekur útum eyrun meðan verið er að troða meiri inn gegnum augnun. Og blótar sér í sand og ösku fyrir að vera ekki löngu búin að glósa allt það sem þurfti að glósa, lesa allt sem þurfti að lesa og fyrir að hafa eytt of miklum tíma á Facebook, fjandans Facebook. Lofar sér að ef hann nær þessu prófi skikkanlega þá skuli hann aldrei, aldrei framar, svo mikið sem anda á Facebook, en kíkir svo smá, þetta er svo sniðugur status.

Einu sinni var mér sagt að það besta sem hægt er að gera til þess að fá upplýsingarnar til að tolla í hausnum á sér er að sofa á þeim. Næturnar og svefnin notar heilinn til þess að flokka upplýsingar og setja þær á sinn stað, eða týnir þeim og setur í vitlausa skúffu. Það á ekki að drekka magic , það á að sofa og fara í bað, borða ávexti og skella þér í sund. Því ef hugurinn er farinn að reika þá er besta ráðið að skella sér út í frískt loft, hreyfa sig og byrja svo hreinn, ferskur og endurnærður. En hver stendur í svoleiðis vitleysu. Það er líka hægt að skreppa bara út í sjoppu og fá allt einbeitingardraslið í dós


Þessi grein er eitthvað svo mikið talað úr mínu hjarta! ég er hreinlega búin að vera einangruð frá mannlegu samfélagi að það var hálf skrýtið að vera í krónunni kl hálf sex í dag. Ég var ekki að meika allt þetta fólk hreinleg! Sjitt! Prófin verða búin eftir viku og það verður hreinlega átak að koma sér aftur inn í mannlegt samfélag-váá hvað þetta hljómar eitthvað dramatísk eins og ég sé búin að vera í afplánun í mörg ár en það að vera í prófum er svoldið eins og að vera í fangelsi lífið er einhvern vegin á hold og ekkert gerist eg er ekki einu sinni búin með jólagjafirnar eins og stefnan var. Hvað er þetta með mig og ná ekki easy markmiðum eins og að vera búin með allar jólagjafirnar fyrir próf?! En það er einn munur á mér og þeim sem eru í ekta afplánun-ég er ekki að baka eg er bara inn í herbergi að læra eins og ég veit ekki hvað! Mig langar svooooo í smáááááá liííííííííf!! Með öðrum ég get ekki beðið eftir að áttundi des renni upp því þá mun eg ljúka afplánum! okei er þetta með prófatörnina og fangelsi cheap myndlíking?

En já stöðu minni sem yfirdjamma er mjög svo ógnað eftir að ég fékk það klukkann hálf 12 frá vinkonu minni á msn að henni langaði geðveikt á djammið. Og ég þurfti að segja NEI! Ég kemst ekki á djammið fyrr en eftir tvær vikur þvi ég er í prófum!! En þessi vinkona min fær alveg eitt eða tvö rokkprik fyrir að vilja fara á djammið kl hálf 12 á sunnudagskvöldi;) Það er eitthvað annað en ég-ég er reyndar ennþá að leita að einstakling sem er nógu flippaður til að koma með mér á djammið á mánudegi!:P En einhverra hluta vegna er frekar erfitt að finna þann eistakling...

Komandi helgi verður fimmta helgin i röð sem ég djamma ekki-dugleg ég!:p Ég er alla vega ekki eins og sumir sem tóku síðasta djamm fyrir próf bara um síðustu helgir-ég er búin að eyða síðustu 4 helgum í það að læra.....omg hvað mig vantar líf!!!! HJÁLP!

Ég heiti Ágústa Arna og er mandarínufíkill!

No comments: