Tuesday, October 18, 2011




Halloween Halloween Halloween! Uppáhald okkar sem eigum í stökustu vandræðum með að vera frumleg-er það frumlegt að vera eintómur pappakassi? Ég er alla vega fegnari en orð fá lýst að það er ekki mætingarskylda í búning í partýið sem er búið að bjóða mér í um næstu helgi!

En merki þess að Halloween sé á næsta leiti eru myndir sem settar hafa verið á facebook frá einni af dótabúðum fullorðna fólksins: Adam og Evu (reyndar sá ég að partýbuðin er með einhverja búninga líka en þeir eru bara miklu saklausari en nokkurn tima búningarnir frá Adam og Evu!). En alla vega þá renndi ég yfir myndirnar á A&E facebookinu áðan og sá þar þennan kjól sem kallaði fram minningar. Minningar af mínu sérlega Spice girls tímabili (sem sumir hafa einstaklega gaman af að minna mig á-og nota til þess hvert einasta tækifæri. Þessi kjóll í bresku fána litunum minnti mig á Geri Hallwell eins og sjá má líka hér fyrir ofan. Og það sem ég vellti fyrir mér er: hver hefur almennt áhuga á því að fara klædd sem Geri Hallwell í eitthvað Halloween partý?! Það er ekki einu sinni frumlegt! Plús það að það man engin eftir henni og þú þarft að útskýra það hver þú ert. Vertu frekar Lady Gaga og mættu í eggi þá vita allir Jáá hún er Lady Gaga en þú villt ekki vera einhver fígúra þar sem þú þarft að útskýra hver er aaaaallt kvöldið! Fyrir utan það þá krefst Hallweell múdeeringin hárkollu sem mér finnst off eftir síðasta Halloween! Ég hef sjaldan eða aldrei verið ein pirruð plús það að þurfa að keyra með svoleiðis. Umferðarráð hlýtur að mæla gegn því!

Okei ég leit út eins og fáviti á Halloween í fyrra-samt fékk ég ýmis vafasöm tilboð. Það er eitthvað...

Og já-bæði í gær og í dag hef ég mætt mega hress í ræktina og mér til mikillar gleði hefur verið stillt á FM:D Það eer mun skárra að hlusta á David Guetta vin minn á brettinu en einhverja angurværar ballöður ala Celine Dion!

Tuesday, September 27, 2011

Undarlegt. Formlega séð þá byrjaði eg að drekka kaffi í nóvember 2010 á Kaffi krús. Þá var mér bent á kaffidryk sem væri hreinlega málið: Swiss mokka! Þar sem ég er frekar hlýðinn manneskja þá ákvað ég að fara að ráðum þessarar manneskju og síðan þarna hefur ekki verið aftur snúið. Swiss mokka er einn af mínum uppáhalds! En einhvern vegin hef ég alls ekki litið á mig sem einhvern kaffifíkil. Þó svo að hausinn á manni starfi vissulega betur eftir einn kaffibolla að morgni. Það er bara eðlilegt. Eeeen ég held að ég þurfi að endurskoða þessa skilgreiningu á sjálfri mér sem kaffifíkil eftir mjög svo skerí upplifun í morgunn. Og þá meina ég mjööööööög svo skerí! Ég held að ég hafi fengið smá innsýn inn í hugarheim dópista sem hefur ekki fengið fixið sitt á þriðjudagsmorgni-jáá þetta var slæmt!

En alla vega þá keyrði ég frá Selfossi til Reykjavíkur. Klukkann var um 9 og ég ekki búin að fá kaffi fyrir það tíma sem var svo sem allt í lagi. Nema hvað á Ölfursárbrú þá kemur þessi svaðalega löngun í kaffi. Og við erum að tala um SVAÐALEGA löngun í kaffi. Á aðeins nokkrum mínútum varð mér það ljóst að ég myndi ekki ná til Reykjavíkur án þess að fá mér kaffi. Undir Ingólfsfjalli gat ég ekki hugssað um neitt annað en fyrsta bolla dagsins-hversu ljúft það yrði að renna honum niður. Mmmm! Og á þeirri stundu varð mér ljóst að Hveragerði af öllum stöðum myndi bjarga lífi mínu. Ég var búin að tapa fyrir Kaffifíklinum og myndi ekki komast heil á húfi til Borgarinnar! Hvaaað er það?! Alla vega fyrsta stopp var á shell í hveragerði-en kaffið þar var ekki að hæfa svona helvítis latte lepjandi 101 rottum eins og mér! Með öðrum orðum bara gamli góði uppáhellingurinn. Á Shell var mér bent á Hoflandssetrið en þar væri örugglega boðið upp á eitthvað við mitt hæfi. Einn tveir og tíu þá brunaði ég á Hoflandssetrið en þá var ástand mitt orðið frekar slæmt. Ég stekk út úr bílnum enda farin að sjá fram á það að allri þessari kaffiáþján væri við það að fara að ljúka. En nei Hveragerði er sveit (so sorry Laufey!) og þetta Hoflandssetur var ekki að fara að hleypa neinum inn fyrr en nær dró hádeginu. Og ég sem hingað til hef ekki talið mig sem kaffifíkil var við það að deyja! Ég bara vaaaarð að fá kaffi og það helst í gær! Eina von mín sem var eftir var N1-ég hef aldrei þakkað guði eins mikið fyrir bensinstöðvar og á því augnabliki. En í millitíðinni féll alheimurinn að vita það á facebook að ég yrði að fá kaffi-Núna!! Þessi 2 upphrópunarmerki áttu einmitt að sýna heiminum hversu slæmt ástand mitt var orðið. Að því loknu var brunað á N1 þar sem eyðimerkugöngu minni lauk loksins. Ég fann bara sæluhroll hríslast niður eftir bakinu á meðann ég stóð við kaffivélina á N1-þetta var búið. Og ekki var hamingjan minni þegar dásamlegur fyrsti spinn rann sína leið-okei þetta er mega dramatískt en svona leið mér! Já ég þarf að fara að drullast til að viður kenna það. Sjitt fokk Sjitt fokk-ÉG ER KAFFIFÍKILL!!

Síðustu tveir mánuðir eru búnir að vera blogglausir (alveg komin tími til að breyta því sko!) en þeir hafa samt sem áður alls ekki verið tíðindalausir. Ó nei! Það sem helst hefur borið til tíðinda er að BA hluta lífs míns er lokið en sá hluti hlaut á endanum nafnið "En hún var í svo stuttu pilsi!". Þetta er einn erfiðasti kafli lífs mins enda svaf ég ekkert í mánuð! Og varð til þess að ég fór heim af djamminu fyrir klukkann 2 á föstudagskvöldi-sem er nátturulega brot á ölum lögum partýdýra! Einnig er blái yarisinn sem geymir margar minningar er komin á vit feðra sinna og til sögunnar er nú kynntur Albinóinn sem er hvitur yaris af ætt toyotu dýra-en meira af honum síðan (Binna ég veit ekkki hvort þú sért að gera þér grein fyrir því en þetta nafn er frááááábært:D)

Wednesday, July 27, 2011

Úff nú er eg komin undir smá pressu með þetta BA dæmi allt sama. Sko þegar litlill 4 ára frændi manns minnir mann á það að maður þurfi að klára eitt stykki BA veislu svo hægt verði að halda veislu þá er maður undir pínu pressu! Einmitt. Engin pressa! En mér finnst ég vera að komast svona back on track eftir að hafa verið mjög róleg í síðustu viku varðandi BA ritgerðina. Kannski full róleg. Hmm...

Ég ætla að setja fram smá kenningu. Þegar fólk kemst á ákveðin aldur þá hættir það að kunna á ákveðin einföld heimilistæki svo sem vídjó tæki og DVD spilara. Alla vega er ég vakin nuna flest alla morgna til þess að koma vidjótækinu í gang fyrir litla frænda. Lítur alla vega út fyrir að vera sú eina sem er fær um það hérna á heimilinu. Sérlegt!

En ég kvarta svo sem ekki. Það er eitthvað svo yndislegt að vakna við frændann koma inn í herbergi og biðja mig um aðsetja einhverja mynd í DVD tækið. Það var alla vega sérlega krúttlegt þegar hann kom og bað migum að setja í eitthvað barnaefni. Orðið barnaefni var kannski of flókið fyrir lítinn 3 ára krútthaus en það var samt sem áður mjöööög krúttlegt! En mér er samt ekki farið að langa i krakka-ekki strax eg er ennþá bara krakki sjálf!

Monday, July 25, 2011

BA-Inngangur.

Fréttaflutningur af kynferðisbrotum vekja jafnan mikil viðbrögð hjá almenningi. Fólk fyllist reiði og vandlætinu og spyr sig hver sé fær um að fremja slíkann glæp. Samfélagið vill gera allt til þess að koma í veg fyrir að þessi brot eigi stað með öllum ráðum. En samt sem áður er eitthvað sem veldur því að nauðgun er öðruvísi en allir aðrir glæpir sem framdir eru. Umræða um nauðgun er allt öðruvísi en um önnur brot. Brotaþoli i nauðgunarmáli er oft talinn bera einhverja ábyrgð á verknaðnum sem framinn var. Í því samhengi er ýmislegt týnt til svo sem klæðaburður brotaþola og hegðun hans. Brotaþolar sem eru í miklum meirihluta konur í nauðgunarmálum fá hvað eftir annað skilaboð og ráðleggingar um það hvernig þær eigi að haga sér og koma fram til þess að verða ekki fyrir nauðgun. Þær konur sem fara út að skemmta sér í stuttu pilsi og verður fyrir árás af hendi karlmanns getur sjálfri sér um kennt á einhvern hátt. Hún hefði alveg getað sleppt stutta pilsinu. Hefði hún ekki verið klædd eins og drusla hefði henni ekki verið nauðgað. Hún gaf honum alveg undir fótinn fyrr um kvöldið þannig að hún kallaði þetta á einhvern hátt yfir sig. Þetta viðhorf kemur ábyrgðinni á glæpnum yfir á brotaþola en ekki yfir á þann sem ber alla ábyrgðina á verknaðinum. Sjálfann ofbeldismanninn. Þessi viðhorf hafa öll heyrst í umræðu um nauðganir en þau verða samt sem áður alvarlegri þegar þau koma frá fólki sem kemur að því að vinna nauðgunarmálum til dæmis í réttarkerfinu. Lögreglustjóri sem lætur hafa það eftir sér í fyrirlestri að til að konur klæði sig ekki eins og druslur til að verða ekki fyrir nauðgun kallar auðvitað á viðbrögð frá fólki. Og viðbrögðin við þessum ummælum urðu á heimsvísu í formi göngu sem farin var til þess að mótmæla þessum gömlu viðhorfum. Drusluganga. Konur ákváðu að klæða sig í ögrandi og það sem sumir kalla druslulegann klæðnað. Þessi klæðnaður átti að endurspegla það að konur eigi að geta klæðst hverju sem er án þess að eiga það á hættu að verða fyrir árásum á borð við nauðganir. Ábyrgðin er ekki þeirra. Ábyrgðin liggur annars staðar. Hún liggur hjá þeim einstakling sem ákveður það að brjóta gegn konu sem hann hittir á skemmtistað. Hjá þeim sem ákveður að nauðga konunni sem hann bauð á stefnumót. Eða hjá manni sem ákveður að nauðga ungu konunni sem hann hefur verið að skemmta sér með í partýi fyrr um kvöldið. Hún dó áfengisdauða inn í herbergi. Það er kannski óskynsamlegt að drekka það mikið að maður sofnar. En það leiðir ekki til þess að maður sé sekur um glæp sem framinn var gegn manni. Konur virðast oft ekki vilja kæra eingöngu vegna viðhorfa samfélagsins. Afbrot á borð við nauðgun leiðir af sér skömm og sektarkennd hjá þeim sem verður fyrir ofbeldinu-sem er einhvern veginn alls ekki rökrétt. En einhvern veginn segir samfélagið konum í sífellu að sleppa stutta pilsinu og að passa sig á því að drekka ekki og mikið. Þær sem ekki passa sig eru sekar...
Sjálf fór ég í Druslugönguna á laugardaginn svona af því að ég hef eytt sumrinu í það að hugsa um nauðganir og þessi viðhorf. Svo líka fór ég út að skemmta mér kvöldið áður í fleygnum kjól án þess að vera nauðgað! Magnað að menn skuli hafa getað haldið aftur af sér! En í Druslugöngunni varð ég sorgmædd. Kannski fyrst og fremst út af því að árið er 2011. Og þá finnst manni eins og það eigi ekki að þurfa að mótmæla því að ábyrgð á glæp sé sett á herðar einhvers annars en þess sem framdi hann. Að það hafi bara verið á árinu 2010 sem ríkissaksóknari lét hafa það eftir sér að flestar konur kærðu nauðgun af því að þær væru á bömmer eftir one night stand! Jahér! Í göngunni var sungið að löggann væri besti vinur nauðgarans og að ríkið væri besti vinur nauðgarans. Það fyllti mig ákveðinni sorg. Æjji eg veit það ekki. Auðvitað á hver og einn að bera ábyrgð á sjálfum sér en þó eg sé á djamminu í gleygnum kjól get eg ekki borið ábyrgð á því ef einhver ákveður að nauðga mér. Það er eitthvað sem eg get ekki borið ábyrgð á. Á sama hátt get ég ekki borið ábyrgð áþví ef einhver ákveður að setjast upp í bíl fullur að keyra það er bara á ábyrgð bílstjórans sem stefnir bæði sér og öðrum í hættu. Hversu abúrd væri það ef að löggan kæmi til mín í Austurstrætinu kl hálf fimm á sunnudagsmorgni og segði að það væri mér að kenna að einhver Jón Jónsson hefði verið stoppaður fullur?! Ef mér er nauðgað var ég ekki að biðja um það þó svo að kjóllinn minn hafi ef til vill verið pínu fleyginn!
Um næstu helgi er Verslunarmannahelgin þar sem ungt fólk fer á kannski á sína fyrstu útihátíð Eyjar Akureyri eða whaaaatever. En eru foreldrar búnnir að velta því fyrir sér hvernig þær ætla að tala við unglingana. Fara stelpur á útihátið með þau skilaboð að drekka ekki of mikið og passa sig á öllum ókunnugu köllunum en ekki á vinum sínum sem eru kannski með þeim í tjaldi. Hvað ætlar þeir að segja við syni sína? Farið og neglið eins margar gellur og þið getið? Hmm...veit það ekki. Skilaboðin eiga að vera sú að bera ábyrgð á sjálfum sér fólk getur ekki sífellt verið að hugsa um einhverja aðra en ef eitthvað slæmt gerist (sem maður vonar svo sannarlega ekki!) þá var viðkomandi ekki að biðja um það. Foresldrar eiga að geta sagt það við syni sína sem eru á leið á útihátið að nauðgun er alltaf glæpur-alveg óháð aðstæðum. Nei þýðir nei en ekki já og ekki kannski. Punktur. Svo geta mamma og pabbi sagt eins og Greifarnir hérna einu sinni: VONANDI SKEMMTIÐ YKKUR VEL! Og nóta bene þá er þetta lag jafngamallt mér-nei ég er aaaaalls ekki gömul!!

Nei nú hringi ég í prófarkalesarann-ég hef ekki hugmynd um það hvernig maður skrifan inngang að BA ritgerð!

Wednesday, July 06, 2011

Ég er komin á þá skoðun að þessi ákvörðun min um að skrifa BA núna í sumar hafi kannski ekki verið besta hugmynd í heimi. Ekki þegar komið fram í júlí og 20 stiga hiti og sól og þar fram eftur götunum. Bitur much? Og ekki lagaðist það þegar ég kom í bæinn í dag og það var heiðskýrt! Það er reyndar að verða skýjað núna-takk veðurguð! En sko ég er buin að vera alveg ágætlega bitur í dag. Byrjaði daginn á því að fara í sund á Selfossi. Engin sól og bara semí heitir gaurar-ekkert sem fékk mann til að slefa svo sem. Okei allt í lagi með það ég þurfti að fara í bæinn til að fara á Bokhlöðuna meðal annars til að tékka út nokkrar heimildir og so videre og gá að upplýsingum hjá embætti ríkissaksóknara (kem betur að því eftir smááá) og svo til þess að eyða kvöldinu í Gimli (en ég er stödd þar akkurat núna...). Svo þegar ég er að verða komin í bæinn sé ég að það er sönn í Reykjavík ssem ölli mér vonbrigðum en jafnframt smá gleði þar sem ég þurfti að fara niður í bæ og svona. Ég legg á Skólavörðustígnum og fer á skirfstofu ríkissaksóknara þar sem ég ætlaði að ná mér í upplýsingar fyrir mína heittelskuðu BA en það var bara fýluferð því ég fekk að vita það að ég væri buin að fá sendar upplýsingar í tölvupósti um að ég fengi upplýsingarnar sem ég var að biðja um senda í email seinna! Náðuð þið þessu? Kikti líka aðeins inn í Sævar Karl og eg get svo svarið það að sá sem var að vinna þar var svo pottþétt gay!

En okei úr því að ég var komin svona skuggalega nálægt Austurvelli þá varð ég að rölta þangað þó svo að samviskan benti mér á að ég þyrfti að fara og gera ákveðna hluti á Hlöðunni. En eg hunsaði það með og fékk mér kaffi á Austurvelli með nagandi samviskuit yfir því að vera ekki á Hlöðunni þó mig langaði ekkert að vera þar! Uuu spees! En eftir smá tan og einn dásamlegann swiss mokka bolla (mmm!) drullaðist ég á hlöðuna og gerði allt sem ég ætlaði að gera þrátt fyrir það að þar lokaði finn og ekkert nema sunshine úti!Whoop! Eeen markmiðið er að skella sér yfir 6000 orðin i kvöld (komin i 5678 orð-óendanlega töff tala!) til að ég geti farið út að skemmta mér með góóóðri samvisku um helgina:D Whoop!

En ég held samt að það eigi að vera hellings sönn á morgunn-sem kannski eykur enn á biturleikann! Hvað er það? Eiga ekki allir að vera mega happy þegar það er ekkert nema sóskin úti? Tjahh nema eg-sem endilega þurfti að velja það að skrifa BA i sumar!

Já eg held að ég leyfi mér bara að segja það:

FML!!

Monday, July 04, 2011

Okei frábært. Þegar ég vaknaði i morgunn og áttaði mig á því að mig hafði dreymt það í nótt að ég væri að skrifa BA i einhverjum banka varð ég pínu pirruð. Okei ég varð eiginlega mjög pirruð. Mér fannst ég hafa náð einhverju stigi í öllu þessu ba ferli og nú er eg sem sagt komin á það stig að vera farin að dreyma BA. Af hverju getur mig ekki dreymt einhvern dásamlega fallegann karlmann?! Andkotinn...

En föstudagskvöldið. Vááá! Ég held að ég og Brynja Ósk Höfum sett eitthvað met i gleði. Okei alla vega í því að vera hyber! Við vorum mjööööög hyber ekki bara á föstudaginn heldur alla vikuna þar sem lagið Ertu humar eða ertu rækja sönglaði í hausnum á okkur. Og hugsuðum um fátt annað en huma (Okei svona út af BA hugsaði ég um humar og nauðganir-sérleg blanda!) En markmið kvöldsin var að fá sér humar og að ég færi í sleik-en merkilegt nokk þá náðust bæði þessi markmið (okei mamma...ég er ekki að fara að ræða þetta neitt meira!) Humarinn var samt pinu vesen þar sem að það var ekki opið á staðnum sem við ætluðum að gúffa í okkur alls 500 grömmum af humri það er að segja ég með 250 grömm og Binna með 250 grömm. Eeeen það er ekki opið á þessum blessaða stað nema í hádeginu alveg fram í ágúst. Þvílik þjonusta! Þannig að það þurfti að breyta plönunum aðeins og finna einhvern annan stað sem byði upp á humar þí að það væri ekki í formi hreinna 250 gramma! Saffran varð fyrir valinu enda eru þeir með unaðslega góðar humarpizzur á matseðlinum. Mmmm! Þvílikur unaður!

En já ég er seinheppin. Það fer ekki á milli mála. En kommon að hella niður þremur glösum á aðeins nokkrum klukkutimum er kannski aðeins of mikið! Nr eitt-kaffibolli númer allt of mikið þennanföstudaginn endaði á kjólnum minum á miðjum Skólavörðustígum nokkur hundruð metrum frá næsta bílastæði-ég sneri við með það sama og þakkaði guði fyrir að hafa tekið með mér annan kjól! Glas nr 2-mohitoinn á Hressó meina glasið það rann bara út úr höndum á mér og megnið á gólfið nema smá mohito lögg og hellingur af klökum-Binna missti það úr hlátri! Glas nr 4 var kók glas á thorvaldsen við skelltum okkur á dansgólfið til að sýna mjöööög svo eggjandi takta sem virkaði því miður á menn um sextugt-spurning um að fara að worka þessar hreyfingar aðeins betur. En glas 3 endaði á gólfinu en mer var tjáð að það var ekki mer að kenna heldur hafi einhver allt of drukkinn einstaklingur rekist í það-þessi einstaklingur fær hér með takk!

Eeeen epískasta móment kvöldsins var tekið á Austruvellinum þar sem við sátum og bulluðum í næstum klukkutíma! ó mæææ hvað það var mikil sniiiilld :D Þar komumst við að því að við þekkjum hvor aðra of vel eiginlega það vel að við auglýsum eftir auka manneskju í samband okkar (vá hvað þetta hljomar eins og einkamála eitthvað...) til þess að fara á almennilegt trúnó! Þetta er slæmt! En er ekki hættulegt að þekkja vinkonu sina svona vel? Hmm eða bara gott því við segjum hvor annari ALLT! :D Og já myndirnar sem voru teknar-múhahahaha þær koma ekki fyrir sjónir almennings svoooo mikið er víst!! Hahaha

En eftir svona úber skemmtilegt föstudagskvöld-er nokkur hissa á því að manni langi aftur á djammið?! Eða er eg allt of mikið partýdýr? Neiiii það getur bara ekki verið :D

Thursday, June 09, 2011

Long time no blogging og allt það eeeeeeeen nú liggur mér svooooldið mikið á hjarta!

Ég er eins og flestir vita ekki sú stærsta í bransanum og hef af einhverjum ástæðum alltaf valið mér vini sem eru tjahh í stærri kantinum. Meina flestar af minum bestu vinkonum eru í kringum 180 cm sem er frábært-alveg þangað til að það kemur að því að fara í partý með þessum yndislegu stúlkum! Og ekki misskilja mig það er mjöööög gaman að djamma með þeim og allt það eeeeeen vandamálið er hæðin á hælunum sem þessar yndislegu vinkonur mínar velja sér...og nú kann einhver að velta því fyrir sér að það sé nú ekki svo mikið vandamál en kommon eg er ekki einn og sextíu á hæð og er alls ekki týpa sem fer i 10 cm hæla. Svo er ákveðið að smella mynd af okkur vinkonunum sem eru flestar um einn og nítíu á hæð í 10 cm hælum á meðan eg er eki kannski 4 millimetra hælum og þarf að öskra á þær svo þær heyri alveg örugglega i mer vegna þess að hæðarmunurinn á okkur er það mikill! (þetta með að öskra er samt frekar ýkt í minum vinkonuhóp er notast við talstöðvakerfi...) Það sem eg eeeer að reyna að segja að það er ekki gaman að vera alltaf þessi lang minnnsta i hópnum (okei fyrir utan eina en við erum svona svipað háar) því að ég fæ alltaf að heyra kommentin um það að ég sé dvergur...sem eg er alveg-eða svona semí! Meina hvað er það okei eg er ekki langt frá því að vera dvergur en af hverju í andskotanum þarf alltaf að nudda manni upp úr því?! Ég hitti i mann í fyrsta skipti á skemmtistað um daginn og hann sagði ekki hæææ við mig heldur "þú ert minni en eg hélt"-einmitt!

Mynd sem tekin á Halloween...




...einmitt!

Hvaða djók er það að Bókhlöðunni skuli vera lokað klukkan fimm á sumrin?!

Nýja stöffið frá Gusgus er fokking geðveikt! Þetta lag er í power spilun hjá mér þessa dagana! Whoop!

Tuesday, May 03, 2011

Eitt sem ég er að vetla fyrir mér. Gleymdi Tobba Marinós að setja kafla í Dömusiðabókina um það hvernig dömur eiga að díla við prófljótu? Blahh ég er að gefast upp! Og ég sem ákvað það að vera svooo prófgordjöss en nei eg lít í spegil og sé manneskju sem er sveitt og úfin! Og á besta vin sem heitir Bounty! Eg gúffaði nánast öllu páskaegginu mínu í mig á núll einni og Það á að vera nóg en neiii eg byrja daginn á að hugsa um súkkulaði og enda hann á að láta mig dreyma um eitthvð súkkulaði hjúpað! Okei mig vantar einhvern gaur til að hugsa um það er nokkuð ljóst! Hvernig lifi eg næstu sex daga af? Alla vega ætla eg að reyna að segja skilið við Bounty vin minn svo for crying outload. Af hverju þegar maður dettur í þetta sérlega prófsession þarf það að snúast um mat sem er mega djúsí og sveitt og gúffa í sig einu stykki af beikon borgara eins og maður fái borgað fyrir það! Hvað varð um kjúklinginn og kotasæluna á matarprógramminu? Ég bara spyr. En okei er ekki málið að setja undir sig hausinn og reyna að velja eitthvað aðeins hollara til að hugsa um en Bounty og meika næstu tæpu viku með prýði. Með vatsmelónum og banönum og sturtum. Og okei hambó á laugardaginn-það á alltaf að halda nammidaginn hátíðlegann! Þarf eg eitthvað að taka það fram að ég er með fituna?


Íslendingar er alveg sérlegur þjóðflokkur. Ef það kemur mikið sem 15 stiga hiti eru allir mættir berir að ofan í bjór á Austurvelli. Það er samt mjöööög krúttlegt! Omg hvað ég get ekki beðið eftir því að eyða sólríkum sumardögum á Austurvelli :D

Sunday, April 17, 2011

Eitt sem ég er að velta fyrir mér. Var Vala grand að setja ný viðmið um það hvernig á að halda upp á 25 ára afmæli. Meina á eg ekki sjens á því að toppa það? Sérstaklega þar sem ég er í prófum. En okei ef eg væri ekki í prófum á 25 ára afmælisdaginn minn hvernig myndi ég toppa afmælið hjá Völu Grand? Ekki get ég farið að herma upp sokkaböndin Geira Goldfinger eða Haffa Haff sem veislustjóra. Hmm? Okei ég myndi sennilega halda það á Thorvaldsen (kemur ekki á óvart) það væri einhver nekt hjá Karlmönnum (kemur kannski ekki á óvart þegar ég á í hlut..) en hver væri veislustjóri? Hvað kostar Jón Gnarr? Hann er sjúklega fyndinn siðan er Kalli Baggalútur i borgarstjórn þannig að það er örugglega hægt að redda Jóni Gnarr og Baggalút á helvíti góðum díl. Ekki nema að ég fái bara Baggalúts menn til að vera veislustjórar og sjá um tónlistina og það væri alveg nóg að þær læsu bara upp af Baggalút.is eg færi ekki fram á mikið meira-er svo hógvær! Hmm celeb sem toppar Geira á Góldfinger-pottþétt Þórir Gunnarsson! Ekki segja eitthvað Þórir who-þið vitið alveg hver þetta er (bassaleikarinn í Á móti sól dahh!). Svo er þemað. Okei ekki sokkabönd það er búið að nota það...hmm? Hvað með...strumpabúninga? Ég meina þá þurfa gestirnir að leggja geðveikt mikið á sig það tekur geðveikt langann tíma að mála sig allann bláann frá toppi til táar auk þess að redda svona strumpahatti. Og já það verða allir að vera búnir að finna út hvaða strumpur þeir eru-djammstrumpurinn er frátekinn af mjöööög augljósum ástæðum! Og með þessu kombói-Baggalútur sér um veislustjórn Þórir Gunnarsson toppar Geira á Goldfinger og strumpa þema-er komin uppskrift að partýi sem toppar VIP skinku partýið! Eina vesið er að ég á bara 700 vini á facebook en ekki tæplega 5000 eins og Grandasian eins og hun er kölluð!Eeeen þetta eru draumórar-ég verð að lesa aðferðafræði á afmælisdaginn minn-like!

Tapaði fyrir púkanum á öxlinni í gærkvöldi og skellti mér á djammið í síðasta sinn fyrir próf-og inn í því er öööll páskahelgin! En gott djamm engu að síður-nema kannski ekki að fila að það taki 10 mínútur að komast á dansgólfið á Hressó! Það er of mikið. Og já eg verð að hrósa tónlistinni á Thorvaldsen-hún fékk mig alveg til að missa mig sko...:D

Wednesday, April 13, 2011



Þetta lag þessi texti þessi túlkun þessi söngkona þessi rödd þessi flutningur! Looove it!

Wednesday, April 06, 2011

Nú er komin sá árstími þar sem ég lifi eingöngu eftir skiladögum á verkefnum og dagsetningum á prófum. Til að mynda fór dagurinn í hópverkefni og það voru bara 11 tímar takk fyrir! Líf einhveeeer! Það er akkúrat í lok annar sem maður þakkar guði fyrir það að vera single. Ég hefði ekki meikað það eftir að hafa verið að gera hópverkefni í 11 klukkutíma að hafa þurft að hlusta á kallinn væla yfir því hvað hans dagur var ógeðslega erfiður-minn var alveg nógu erfiður!

En það er akkúrat þegar maður er að taka prófsessionið að maður þarf lög sem gera mann hamingjusamann eins og þetta krúttlega andalag:D :



Omg hvað ég verð happy þegar eg hlusta á þetta lag!:D Fyrir utan það náttúrulega hvað þetta er krúttlegt:D

Eigum við ekki að segja það að það verði ekkert djamm um páskana-með öðrum orðum það verður ekkert djammað fyrr en eftir 9 maí. Og það er meira en mánuður þangað til. Mér finnst þetta eiga svo vel við akkúrat nuna: FUCK MY LIFE!

Thursday, March 31, 2011



Þetta lag er eg einhverra hluta vegna buin að hlusta á aftur og aftur og aftur alla þessa viku. Og það er ekki eins og þetta sé eitthvað nýtt lag. Heldur er þetta eeeeld gamalt en sjúklega gott lag með Journey sem er sjúklega gott band. Og eru að koma með plötu nuna í vor. Vonum bara að það verði ekkert disaster!

Talandi um vor-eg er viss um að sá einstaklingur sem ákvað það að námsmenn ættu að vera að drukkna i verkefnum ritgerðum og profum akkúrat á vorin hefur verið verulega illa við námsmenn! Hvað er það loksins þegar að allur snjórinn er farinn og ekki 20 stiga frost úti og maður þarf ekki að skafa af bílnum sinum á morgnanna (i hate it!)þá er maður að vinna einhver leiðinlegustu verkefni sem hægt er að vera að vinna-eeeen til að verða ekki brjáluð af pirringi ætla eg ekki að ræða það meira!

En eg þakka guði fyrir það að það sé föstudagur á morgunn! Eftir mega viku i skolanum (lærulega séð dominos var ekki að dreifa fríum pizzum i skolanum-hmm hugmynd fyrir studentaráð?) þá verður farið út á morgunn og dansað til að gleyma!Og eg verð að nefna það að farið var að skipuleggja gleði morgunndagsins 12 til 14 tímum eftir að ég kom heim af djamminu á sunnudaginn! Þá hugsaði eg nei kommon eg e virkilega veik manneskja! Þetta var ooooof mikið! En síðasta helgi var skemmtileg og þá sérstaklega sérlegur kokteil listi á Fabrikkunni. En! mer tókst samt ekki að muna aðall brandarann sem eg blastaði á facebook. Málið er að á kokteil lista fabrikkunnar er kokteill sem nefnist Mök í Nauthólsvík (e. Sex on the beach). Daginn eftir fór eg að segja fólki frá því hvað mer hafði þótt það fyndið að á Fabrikkunni væri kokteill sem heti KYNLÍF í Nauthólsvík blastaði því á facebook og allt! En mer var vinsamlegast bent á að kokteillinn heti MÖK Í Nauthólsvík! Enda er orðið Mök miklu fyndnara en nokkurn tima orðið kynlíf! En nei mer tókst ekki einu sinni að muna rétt nafn á helvítis kokteilnum! Vinkona mín hefur hótað að gefa mér gullfisk í afmælisgjöf (sem er eftir semí nokkra daga...) bara svo eg búi með annari lífveru sem er með álíka gott minn og eg! Það er aalla vega erfitt að finna karlmann sem er með jafn æðislegt gullfiskaminni og eg! En ef svo er má sá hinn sami endilega gefa sig fram!

Hmm gæti einkamálaauglýsing hljómað: "Óska eftir að komast í kynni við karlmann sem man ekkert stundinni lengur"-sérlegt!

Sunday, March 20, 2011

Á einhverjum runtinum um óravíddir internetsins fann ég þennan sérlega pistil sem bar fyrirsögnina ÉG ELSKA SOGBLETTI! Uuu okei...! Okei nuna er sunnudagur og örugglega er eitthvað lið að vakna eftir goodsjitt djamm á leiðinni í eitthvað sérlegt fjölskylduboð eins og skírn eða eitthvað (er ekki hægt að velja einhvern annan dag en sunnudaga fyrir þessar athafnir?) lítur i spegil og sér að skemmtistaðasleikurinn sem gekk kannski aðeins of langt á Hressó klukkan hálf fimm í nótt endaði í massívum sobba á hálsinum! Jááá frábært! Og hvernig áttu að útskýra þennan myndarlega sogblett sem einhvert fokkfeisið var svo almennilegt að skilja eftir á hálsinum á þér svona til minningar um fyllerýs drátt fyrir gömlum frænkum? Já sko mér leiddist svo hrikalega í gær að ég ákvað að nota ryksuguna til að búa til á sjálfa mig sogbletti. Meina ég var búin að horfa á Idolið á föstudaginn. Í alvöru! Einmitt elskan að einhver gömul frænka sem bólu á nefinu sé að fara að trúa því! Það er allt sem er vandræðaleg við sogbletti sérstaklega í fjölskylduboðum. En hvað er að þeim manneskjum sem hafa þessa sérlegu þörf fyrir að smella einum sobba á leikfélaga sína?! Ef einhver karlmaður sem eg mun deita einhvern tima á lífsleiðinni mun einhvern tima voga sér að setja á mig sogblett verður sá hinn sami eltur fyrir lífstíð!Ó alvöru þetta er ekki fallegt!! En okei aftur að þessum pistli. Á einum stað segir þessi gella sem skrifar hann: Sogblettur er eins og blikkandi neonskilti til minningar um skemmtilega kvöldstund. Sá sem ber sogblett ætti að vera stoltur því það er greinilegt að sá aðili sé að „fá í'ana”, engir kóngulóarvefir á ferð þar.-einmitt! Akkúrat það sem maður vill að mæta í afmæli hjá litla frænda og öll fjölskyldan veit hvað maður var að gera kvöldið áður vegna þess að maður er með fokking sobba! Uuu bless! Það síðasta sem maður vill er að mamma og pabbi og allir hinir i manns nánustu familíu vita að maður lá undir einu stykki fokkfeisi kvöldið áður! Allt í sambandi við sogbletti er vandræðalegt! Það er bara þannig!

Fór í ræktina kl sieben á föstudagsmorguninn og tók í kjölfarið á því sennilega hressasta föstudag allra tíma-djók! Ég var sofnuð fyrir 11 á föstudagskvöldið! Mjöööög hress eða þannig...þannig að það er klárt djamm um næstu helgi til að vega upp á móti því að hafa farið svona snemma að sofa á föstudagskvöldið! Og eg býst við miðað við þann hóp sem eg er að fara að skemmta mér með um næstu helgi aðþað verði eitthvað aðeins hlegið :D

Thursday, March 17, 2011

Ég þrái sumar sól að sitja í Austurvelli í sólinni með eitthvað illa kalt í glasi hálf léttklædda karlmenn vera á röltinu á milli skemmtistaða á bjartri sumarnótti í 101 Reykjavík (Það eru best!) útilegur gítarspil grilllykt sem fyllir loftið lykt af myslegnu grasi vera i sundi allann daginn tana-með öðrum orðum ég þrái sumar! Ég meina það snjóar svo mikið akkúrat nuna aðég er í alvöru að spá í að hlusta á Let it snow og hengja upp jólasériur! Enough is enough! Í alvöru!

Fann einhvern nightlife guide á einhverju kaffihusinu hérna í borginni sem á að hjálpa fólki að rata um frumskóg skemmtanalífsins á 101-eitthvað sem ég þarf á að halda vegna þess að ég á mjööög auðvelt með að villast! Er ekki við hæfi að gefa einstakakling GPS tæki i 25 ára afmælisgjöf? Hmm...ég get ekkert að því gert en eg hlakka svo til að verða 25-sérlegt!

Ræktin kl 7 í fyrramálið-það verður hresst!

Thursday, March 10, 2011

Ég elska flickmylife.com! Þvílik snilld!En hérna ég kemst ekki hjá því að velta því fyrir mér hvernig trailerinn úr myndinni Lanparnir þagna (e. Silence of the lamps) myndi líta út...:D Sorry en mér finnst þetta eiginlega óendanlega fyndið!:D

Wednesday, March 09, 2011



Þetta eru nokkrar 16 ára stelpur sem gerðu lag við ljóð eftir Davíð Stefánsson og þær eru einmitt líka að sjá um tónlistina í þáttunum Makalaus sem eg veit ekki hvort eg vilji sjá þvi að bókin var svo æðisleg. En ég verð að segja það að þetta lag er yndislegt enda er flutningurinn fallegur einlægur og krúttlegur ;)

Saturday, March 05, 2011



Þetta lag gerir það að verkum að ég dett í einhvern trans og breytist í dansandi dverg sem dansar einhverja útgáfu af The Happy dance! Sérlegt! Og já eg veit að þetta er eeeeld gamalt en það breytir þvi ekki að þetta er dásamleg snilld!:D

Árshátið í kvöööld:D Whoop-kæmi mér ekki á óvart að það yrði alla vega 12 tíma djammsession! Whoooop!

Og eitt með nýja lagið frá Rihönnu það segir á einum stað í textanum eitthvað sex in the air eitthvað-alltaf þegar ég heyri það kemst ég ekki hjá því að sjá fyrir mér Rómeó og júlíu vesturports loftfimleika eitthvað! Ef sex in the air er eitthvað í líkingu við það þá er eg mjööööög hrædd!!

Monday, February 28, 2011

Þar sem það er mánudagur er ekki Miller time heldur it's bloggtime!

Þessi helgivar kannski ekki sú allra hressasta þar sem maður var að læra! Já nei það er ekki að hljóma neitt æðislega og í fyrsta sinn i gærkvöldi þá var eg hálfpartinn fegin að helgin var að verða búin-sem segir allt um það hversu hress þessi helgi var eða kannski ekki! Þess vegna verður ekki tekin læru helgi um næstu helgi nema kannski að hluta en miðað við planið svona það sem eftir lifir annar þá verður nokkuð mikið kannski um læru helgar-maður lætur alla vega ekki hella yfir sig gin og tónik á meðann! En já eftir þessa ekki skemmtilegu helgi þá er eg farin að láta mer hlakka til (íslenskufasistar munu sjá eitthvað rangt við þetta!) næstu helgar! Já eg edrú týpan er alveg eins og alkarnir svei mér þá! En kommon maður fær að vera alvöru VIP týpa um næstu helgi enginn Geiri á Goldfinger eða einhverjar varla talandi ofurskinkur með allt of mikið brúnkukrem að þvælast fyrir. Skinkur eru eflaust vænsta fólk en þegar þessar VIP skinkur þarna opnuðu munninn þá langaði mig alltaf að fara að læra! En nóg um það eg verð VIP um næstu helgi þar sem að þemað á árshátið Norm (nemendafélags félagsfræðinema) er VIP! En ekki hvað? En okei það sem gerir þetta ennþá meira töff er að árshátiðin er á fokking Hótel Sögu!:) Verður þetta eitthvað flottara en það ? Okei nema kannski i Perlunni. En nóg um það þá verður næsta helgi mun og þá meina eg muuuuuuuuuuuuuuun skemmtilegri en þessi helgi!! Það er bara þannig!

Flestir mánudagar á þessu herrans ári 2011 hafa ekkert verið neitt sérstakir-enda eru mánudagar kannski ekkert í uppáhaldi. En eg meina þetta hafa verið sko mánudagar það sem akkúrat eeeeeekkert hefur gengið upp. Meira að segja einn mánudaginn þá var allt líf mitt á plús (svona eins og um væri að ræða eitthvað í líkingu við stöð 2 plús...)eg var sein i allt svaf yfir mig mtti seint i alla tima og eeeeeeeekkert gekk upp og þá meina eg ekkert! Síðasti mánudagur var alveg sérlegur-var að vinna verkefni sem var skilað í siðustu viku (Það er alveg búið að vera pínu kreisi í skólanum) nema hvað að ég ætla að finna gögn sem þurfti að vinna úr inn á Uglunni eeeeeeeeen nei-eg fann ekki helvítis gögnin! Það var alveg hresst-eg var hvit í framann nötrandi og skjálfandi fyrir framann tölvu út i tölvuveri upp i skóla! Mjöööög hresst! En þetta endaði samt sem áður allt vel og í aleg tíma skóladegi-allt saman mjööög hresst!

Og já í dag er mánudagur sem er bara búinn að vera fínn ótrúlegt en satt fyrir utan kannski eitt-Justin Bieber og þessi svokallaða tónlist hann hefur ofsótt mig í allann dag! Svala og co daatt i hug að spila Bieber kvikindið bara svona upp úr þurru í morgunn. Það fyrsta sem eg heyri nánast þegar ég kveiki á útvarpinu í morgunn. Síðan kem eg heim af massívri æfingu áðan kveiki á sjónvarpinu Glee að byrja. Og mér til mikillar skelfingar þá er Bieber kvikindið aðal málið í þættinum. Ég setti heimsmet í því að setja á mute!

Mottumars-okei tilgangurinn er voða fallegur ogallt það að hvetja karlmenn til þess að vera á varðbergi gagnvart heilsunni og allt það og mér dettur ekki í hug að dissa það en! ég ætla mer að dissa mottur og þá meina ég yfirvaraskegg. Og eg get sagt það frá mínum dýpstu hjarta rótum og meint það:Ég hata yfirvaraskegg!!Guð minn almáttugur á að gera manni það annað árið í röð að íslenskir karlmenn verða vappandi um bæjinn með mottur alveg geðveikt hressir?! Uuu bless! Ég meina eg fór ut að borða í marsmánuði í fyrra og annar hver maður sem kom inn á staðinn minnti mig á einhverja sem voru búnir að fá hlutverk í einhverri þýskri klámmynd! Svoooldið 80's þýskri klámmyndi með tónlist í lélegri kantinum! Og það er akkúrat ekkert töff við það ! Ó mææææ! Og ein mikilbæg yfirlýsing: Ég ætla ekki i sleik í marsmánuði-eg þyrfti að vera búin að drekka ansi mikið til þess svo mikið sem hugsa um það að fara í sleik við mann með mottu!

Sunday, February 20, 2011

Heimsendir er í nánd.


Heimsendir er í nánd, teiknin blasa alls staðar við, ofbeldisleikir, netklám, steratröll og egófíkn á Facebook. Morgunblaðið slátraði Lesbókinni og bjó til vefsjónvarp þar sem Vala Grand sýnir okkur hvernig á að fara í partísleik á meðan annar kannar leyndardóm punghára Ásgeirs Kolbeins. Þetta er það sem fullorðnir auglýsendur vilja kosta og útgerðarmenn tapa peningum á vegna þess að heimsendir er í nánd og ekkert skiptir máli. Yfirborðið er slæmt en það er barnaleikur miðað við það sem leynist undir yfirborðinu. Fyrirsögn birtist um daginn á Mbl.is um Filippseysku hryðjuverkasamtökin MILF. Fréttin fékk strax 5000 ,,like" á Facebook. Einhver gæti furðað sig á áhuganum á þessum samtökum. Annar hver unglingur virðist þekkja þessa skammstöfun í öðru samhengi. 12 ára pjakkur galaði MILF! á eftir vinkonu minni um daginn. Ég ætla ekki að útskýra skammstöfunina. Spurðu ungling. Hann þekkir hugtakið vegna þess að heimsendir er í nánd. Einu sinni þótti spennandi að vera ungur og sjá hitt kynið nakið. Nú eru menn búnir að sjá svo marga kroppa á netinu að loks þegar nakinn líkami birtist verða þeir fyrir vonbrigðum. Fólk nú til dags stundar víst svo mikið kynlíf að skapahárin hafa nuddast af þeim.



Við erum alin upp við að heimsendaspárnar rætist ekki. Eldri kynslóðum finnst unga fólkið alltaf stefna beina leið til helvítis. Hernámskynslóðin var í ruglinu. 68 kynslóðin var að fara til fjandans, pönkkynslóðin og diskódræsurnar sömuleiðis, hvað þá technohausarnir. En sannar það að áhyggjurnar voru óþarfar? Heimsendir varð ekki '45, '68, '79 eða '94. Hins vegar er hann yfirvofandi einmitt núna.



Samkvæmt nýjustu rannsóknum telja 50% ungra drengja að karlar séu betri leiðtogar en konur. 34% þeirra finnst betra að karlar taki ákvarðanir almennt. Einungis 13% íslenskra stúlkna og 23% íslenskra drengja finnst að konur geti gegnt hlutverki túarleiðtoga, s.s prests. Tæpum 40% íslenskra drengja finnst að ef karl og kona eru í sambúð eigi karlinn að ráða meiru. 50% íslenskra drengja á aldrinum 16-19 neyta kláms einu sinni í viku eða oftar. 20% þeirra eru stórneytendur á klám, þ.e. neyta þess daglega. 36% íslenskra drengja finnst að karlar eigi að fá forgang umfram konur á atvinnumarkaði, ef atvinnuleysi ríkir. Árið 2008 taldi ríflega þriðjungur svarenda á aldrinum 18 til 35 ára í könnun sem Félagsvísindastofnun gerði fyrir ASÍ eðlilegt að Íslendingar njóti betri kjara á vinnumarkaði en fólk af erlendum uppruna.



Tölfræðin sýnir að mannréttindi og jafnrétti eru alls ekki talin sjálfsögð gildi í samfélaginu. Þeir hefðu alveg eins getað sagt að hvítir karlar væru betri en gult fólk, svart fólk. Allir þessir drengir eiga mæður og feður. Eitthvað hefur farið svakalega úrskeiðis, í uppeldi, í skólakerfi, í fjölmiðlum. Það má deila um hvort þetta séu leifar af gömlum viðhorfum eða bein viðbrögð við auknum kvenréttindum.


Níðrandi orð eins og bitch, ho, slut og MILF eru að festa rætur en spretta úr klámi sem gerir út á hreint kvenhatur. Á síðum eins og Formspring leggja ungir krakkar höfuð sitt á höggstokkinn og bíða þess að perrinn á klístruðu tölvunni slái inn nafnlausa spurningu: „Ertu hrein? Er mamma þín MILF?" Heimsendir er í nánd.



Konudagurinn er í dag og það má alveg velta fyrir sér hvernig stendur á þessu? Hafa foreldrar verið svona slæmar fyrirmyndir? Hafa foreldrar 50% íslenskra drengja einhverra hluta vegna ekki skilað sjálfsögðum hugmyndum um jafnrétti kynjanna til strákanna sinna? Eru þetta leifar af útrásinni? Eða er ástæðan einhverskonar meðvitundarleysi, hlutleysi og óttinn við að vera ekki kúl. Foreldrar reyna hvað þeir geta til að sýnast ekki púkalegir, að vera ekki afturhald. Það er erfitt að andæfa. Sá sem segir eitthvað gæti átt von á því að vera kallaður rasshaus í símaskrá allra landsmanna.



Á sama tíma og þessar öfgafullu tölur birtast þykir ekkert jafn hræðilegt og svokallaður ,,öfgafemínisti". En tölfræðin er öfgafull, hvort sem horft er á hlutfall karla í stjórnum fyrirtækja, kynjahlutföll í Hæstarétti, hlutfallið á Alþingi, launamun kynjanna eða fjölda nauðgana. Það er furðulegt að róttækasta aðgerð femínista sé að skrifa pistla og endurtaka 35 ára gamla hugmynd um kvennafrídag. Það telst varla mjög róttækt. Í bloggheimum er Sóley Tómasdóttir holdgerfingur hins illa í íslensku samfélagi, hún þorir að vera leiðinleg opinberlega, en það krefst hugrekkis.



Það má velta fyrir sér hvort ekki sé þörf á miklu öfgafyllri femínistum ef almennilegt samfélag á að bíða þeirra sem hér alast upp. Getur verið að fyrri kynslóðir hafi ekki farið til helvítis vegna þess að foreldrum þeirra stóð ekki á sama? Er eitthvað að því þótt yngra fólkið þurfi að rökstyðja viðhorf sín og lífsgildi? Upp úr rökræðunni kemur þá einhver hugsun og samskipti, jafnvel einhver niðurstaða. Einhverjar mömmur þarna úti eru kannski of uppteknar við að raka á sér pjölluna til að halda í við netnotkun eiginmannsins. Einhverjir pabbar þarna úti hafa eytt fullmiklu púðri í að hafa áhyggjur af ,,öfgafullu" jafnrétti í stað þess að huga að því hvernig samfélag bíður barna þeirra. Það er hellingur af klárum og efnilegum krökkum þarna úti. Það er mikilvægt að hafa áhyggjur af þeim.


Þessi pistill er skyldulesning fyrir alla sem hafa áhuga á þvi samfélagi sem við erum að búa til fyrir framtíðina!Lestu hann og taktu afstöðu ef að þér er ekki sama!

Friday, February 11, 2011

Jáá ég verð að viðurkenna það að ég er með sérlegan helgarfiðring í tánum-og eg get hreinlega ekkert af því gert! Og kannski vil eg ekki gera neitt í því ;) hehe. Ég held að þetta verði legendary helgi kannski svoldið kreisi ég á að vera voða ábyrg og lesa heimildir um mýtur um nauðganir-en eg held að það verði tekið eitt stykki kreisi helgi enda má það svona einu sinni á önn:D

Ef ykkur vantar eitthvað til að dansa við þá er þetta aaaaaalveg málið :D:



:D

Og já smá BA-BA status 2501 orð! whoop!

Saturday, January 29, 2011

Ég veit ekki hvað það er langt síðan að tónlistarmynd virkilega hreyfði við manni en það er alla vega orðið mjög langt síðan. Flest tónlistarmyndbönd alla vega síðustu 10 árin hafa snúið um það að söngkonur (sem sumar hverjar hafa mikla hæfileika) eru hálf naktar dillandi bossanum í myndavélina ef að þetta er karlkyns listamaður þá er hann full klæddur með bling og hálf naktar konur i kringum sig og yfirleitt er textinn jafnvel um konur. En um síðustu helgi var ég eitthvað á youtube að skoða eins og eg geri frekar oft og fann þar myndbandið við nýja lagið frá Pink sem heitur Fokking Perfect. Fallegt lag með falleg skilaboð til ungra stúlkna um að gera kannski ekki lítið úr sjálfri sér endalaust eins og við gerum svo oft og þar er eg enginn undantekning eg hef eytt mörgum klukkustundum fyrir framan spegilinn og rakkað sjálfa mig niður fyrir að vera svona eða hinsegin of feit og með alla þessa týpisku konu komplexa. Og eg á það enn þann dag i dag til að horfa á sjálfa mig í spegli og sjá þar feitu og ljótu týpuna-en sem betur fer hefur þeim stundum fækkað! Með því að fara og taka sjálfa mig á í maí 2009 sem er eins konar vendipunktur í mínu lífi þvi fram að þeim tíma hafði eg einhvern vegin ekkert sjálfstraust enga sjálfsvirðingu var veeeel yfir 100 kíló og þar fram eftir götunum! Ég var bara á stað í minu lífi sem var alls ekki góður og mig langar aldrei og þá meina eg ALDREI á þann stað aftur! Og eg hef lika lært það nuna að ég verð að hreyfa mig til þess að mer liði vel. Ég komst ekki í ræktina í viku um daginn ut af einhverju ógeðslegu túrveseni (af hverju í andskotanum geta karlmenn ekki farið á fokking túr?!) og var orðin mega pirruð og þurfti að losa um eitthvað. Síðan komst eg í Body pump og omg eg held að í einum tima hafi losnað um þvilika gleði! Og mer leið svo vel á eftir! Þannig að ég hef bara lært það að til þess að mer liði vel þarf eg að hreyfa mig reglulega borða hollt (þarf aðeins að vinna í þvi betur en það kemur ) brosa og vera jákvæð! Ég lét það reyndar ut ur mer um daginn við vinkonu mina að ég væri megabeib en stefnan væri sett á það að verða ennþá meira megabeib:P (ego much?) Ég má kannski alveg vera grennri og allt það en eg er sem betur fer hætt að rífa mig niður fyrir það að vera of feit eða svona eða hin segin! Sem er framför! Síðan er það kannski það mikilvægasta er að ég er nuna með sjálfstraust sem eg hafði alls ekki áður! Og ef maður hefur ekki sjálfstraust þá gerir maður held eg ekki mikið!



Stelpur hættum að tala okkur sjálfar niður og vera vondar við okkur sjálfar-okkur skjátlast held eg voða voða oft!

Djöfull elska eg þetta lag!

Wednesday, January 26, 2011

Ég er algjör sokker fyrir fallegum ástarsögum og hér er ein slík:

Bar upp bónorðið í vitlaust númer.

Díönu Potts, fjörutíu og fjögurra ára húsmóður í bænum Gateshead fékk heldur betur skemmtilega spurningu þegar hún hlustaði á talhólfið í símanum sínum á dögunum. Breskur hermaður í Afganistan las inn skilaboð til hennar þar sem hann bað hana um að giftast sér.

Það var samt eitt vandamál. Hún þekkti engan breskan hermann í Afganistan og auk þess er hún gift þriggja barna móðir.

„Ég elska þig svo mikið, ég elska þig af öllu hjarta og ég ætlaði að spyrja þig, þú þarft ekki að svara, augljóslega geturðu það ekki, en viltu giftast mér?" Svona hljómuðu skilaboðin til Díönu þegar hún hlustaði á talhólfið í símanum sínum eftir að hún náði ekki að svara í hann einn daginn.

Díana segir við breska fjölmiðla að hún hafi áttað sig á því að hermaðurinn var að tala úr símaklefa því símtalið hafi verið mjög óskýrt. „Ég var í sjokki, og þurfti að hlusta á það aftur til að átta mig á þessu. Ég held að hann hafi slegið inn vitlaust númer og að símanúmer kærustu hans sé líkt mínu," segir Díana.

Stúlkan sem hermaðurinn ávarpaði heitir Samantha. Hann tjáði henni einnig að hann verði eflaust í Afganistan í þrjá mánuði í viðbót. Þá er kærasta hermannsins þunguð, af skilaboðum hans að dæma. „Ég get ekki beðið eftir því þegar við eignumst barnið okkar, litla hermanninn. Ég mun gera allt sem ég get til að vernda þig og barnið og elska ykkur af öllu hjarta."

Díana sendi breskum fjölmiðlum tölvupóst til að fá hjálp við að finna einhvern sem þekkir rödd hermannsins eða kærustu hans, Samönthu. „Við verðum að finna hana," segir Díana.

Samantha er ekki komin í leitirnar, en nú bara að bíða og sjá, hvort að Samantha gefi sig ekki fram.


O my god hvað ég vona að þessi Samantha finnist!

Annars er eg frekar yfirborðskenns í augnablikinu-var í strípum í dag og er kreizí ljóshærð og geri ekkert annað en að hlusta á píkupopp!

Monday, January 24, 2011

Ég er svo stressuð að það er ekki sniðugt! Og nei eg er ekki að fara í próf eða á deit eða neitt þannig! Ég er að fara að horfa á handboltaleik!! Þetta er ekki sniðugt!! En ÁFRAM ÍSLAND!!

Wednesday, January 19, 2011



Svona stelpulög eru alltaf hressandi!;)

Ég var að sjá það að ég á 3855 ólesna pósta á hotmailinu mínu-hvort á ég að eyða þeim þegar ég er komin upp í 4000 ólesna pósta eða þegar þeir verða orðnir 5000? Og já mest af þessum póstum er frá facebook!

Friday, January 14, 2011

Ég er búin að setja saman sérlegan BA playlista sem verður notaður til þess að halda geðheilsu minni réttu megin við strikið. Þessi playlisti inniheldur rúmlega 4 tíma af eðal tónlist en á playlistanum má meðal annars finna lög eins og

Hurts-Wonderful life
Florence and the machine-Dog days are over
Robert Tepper-There is no easy way out
Kings of leon-Sex on fire
Muse-Plug in baby
Stone temple pilot-Interstate love song
Massive Attack-Teardrops
Creed-One
Páll Óskar-Gördjöss
Thomas Holm-Nitten-lag sem hreinlega festist á hausnum á manni!
Eric Clapton-Change the world
Lady Gaga-Alejandro
Pink floyd-Wish you were here
Snow patrol-Run
Robbie Williams
...ásamt fleira eðal stöffi sem eg á eftir að bæta við;)

En hérna er það viðeigandi að vera með lag sem heitir Love game á BA playlistanum þegar BA er um nauðganir?

Veit ekki hvort að ég geti mælt með próteindrykknum frá Hleðslu-Hámar er svo mikið betri

Og já-ÁFRAM ÍSLAND!!

Monday, January 10, 2011

Síðasta önnin mín í háskóla er formlega hafin og hóst með því að rekast á Ásgeir Kolbeins þegar eg var að labba inn í Gimli í morgunn! Hmm ætti að gera þetta að hefð í háskólanum að Ásgeir Kolbeins taki á móti nemendum í HÍ við upphaf hverjar annarÐ Veit það samt ekki...

Sem sagt síðasta önninn byrjuð sem þýðir ritgerðir verkefni hópvinna framsögur heimildaleit tölvutímar glósur lesstofulíf Bókhlaðan´BA vera maaaassa dugleg í ræktinni sjá um heimili hitta vinina reyna að eiga sér líf-eða á eg að útiloka möguleikann á lífi strax?-vera þessi svokallaða ofurkona sem lítur alltaf massa vel út og er með heimilið alveg tipp topp! Ég er alla vega að spá í að fá mér dverg til þess að sjá um heimilið svona þegaar mesta geðveikin skellur á! Eru dvergar ekki annars tilvaldir í það? Ég er alla vega viss um að það eru dvergar heima hjá þessum súperkonum-en markmiðið er alla vega að reyna að vera þessi ofurkona. Kannski líka með smá hjálp frá Dömusiðum.

ATH! Þeir sem halda það að ég sé að gera lítið úr dvergum ættu að lesa þessa færslu aftur yfir og hafa það í huga að það kemur úr hörðustu átt að ég sé að gera eitthvað grín að dvergum-semí dvergurinn sjálfur!

Monday, January 03, 2011

Góða kvöldið og gleðilegt árið-aftur! En já eins og hamborgarsteikin og hangikjötið er nú dásamlega gott þá verð eg að viðurkenna þaðað ég er eiginlega fegin að þessum sko mega átseasoni með allt allt of mörgum nammidögum sé að vera búin og coming up svona fyrir utan mest kreizi önn allra tíma í skólanum með BA og öllum pakkanum er að koma sér í form (æjji eg minni svoldið á súmóglímu kappa akkúrat þessa stundina!) og verða einhver útgáfa af megabeibi-eða allavega reyna það!

Gamlárs var tekin í tveimur pörtum (ég er að verða 25 eftir nokkra mánuði og gamlárs var meira hardcore en nokkru sinni fyrr-HJÁLP!) að þessu sinni. Fimmtudagskvöldið var tekið í Hveragerði með stelpunum þar sem að var spilað ÉTIÐ og kjaftað. Hvergerðingar eru með dansleik alltaf einu sinni á ári sem að nefnist Sölvaball (sem er væntanlega nefnt eftir einhverjum Sölva...) og eg get merkt við þetta sérlega sölvaball á to do listanum mínum! Þetta var spes. Ekki svo mikið af fólki ekki beint dansvænasta tónlistin og fulllir hvergerðingar...jeiiiij! En okei þetta var fínt gott að annað kvöldið var tekið án þessa að standa í rööööö-en nánar af því síðar! En eg ætlaði að fara heim klukkan hálf 3 en þegar maður á yndislegar vinkonur sem að tala kannski svoldið mikið þá getur maður lent í því að koma heim klukkann hálf fimm! True story!

En já svo var kominn síðasti dagur ársins sem að leið eins og hefðbundin gamlárs með því að það var ÉTIÐ! Omg eg fékk sennilega máltíð ársins. Mmmm! Enda var ÉTIÐ í samræmi við það! Svo tók við brenna hjá þeim sem ákvaðu að vera ekki mega píjur og sitja heima með maskara og krullur-sem sagt eg fór ekki á brennuna en ég át desertinn. En ekki hvað og það með bestu list! Skaupið var heeeeelvíti fín Ágústa Eva átti stórleik þegar hun söng lokalagið sem að gaf manni smá von. En sú von hvarf reyndar um leið og maður fór út til þess að kveðja árið með mega flugeldasýningu en váááá hvað var kaaaalt! Enda var facebook statusinn rétt eftir miðnætti Ágústa Arna þarf eitthvað heitt í kroppinn! Og ég á alveg facebook vini sem að kommentuðu á þennan sérlega status minn og svurðu hvort mig vantaði eitthvað sem var alls ekki skylt við Kakó-uu bless!

En já nú var komið að því að breyta sér í sérlega partýpíju og halda á vits mohitos og góðrar tónlistar í Hvítahúsinu. En! Fyrir utan fór að renna á okkur alveg 2 grímur (mig Binnu og Sheilu-í stafrófsröð!) og við sjáum það fyrir okkur að það stefndi allt í að við yrðum göngugrindartýpurnar á skímóballi-einmiiiiitt! Þannig að það var tekin ákvörðum um að bruuuuna á vits mohito og góðrar tónlistar á 101. En það sem við vissum ekki að það yrði biðröð og þá meina ég BIÐRÖÐ fyrir utan Thorvaldsen! Og það alveg heill hálftími og það var eeeeenþá jafn kalt og fyrr um kvöldið *brr* En inn á staðinn komumst við og losnuðum við að láta afþýða okkur. Þannig að þá var um að gera að skella sér á dansgólfið og þar eiginlega á sér vandræðalegt móment og omg hvað það er samt sem áður frekar fyndið!:

Sem sagt mohito og góð tónlist var það sem að var málið þetta kvöld og við að sjáæfsögðu skelltum okkur á barinn til þess að fá okkur mohito-en ekki hvað:D Við erum komnar á dansgóldið og mér fannst vera komin timi til þess að skála við Binnu þannig að ég lyfti upp glaasinu minu og rétti það í áttina að Binnu

Ég: SKÁL!!
Binna kemur að mer og öskrar i eyrað á mér: ÁGÚSTA ÞETTA ER GLASIÐ ÞITT!!
Uuuu tilraun tvö
Ég: SKÁL!!
Binna kemur aftur upp að mér og öskrar á mig eins og hún fengi borgað fyrir það: ÁGÚSTA ÞETTA ER GLASIÐ ÞITT!!
Ég var svona að pæla í því að taka fram símann minn og skrifa hreinlega skál en ákvað að gera tilraun 3 eeeeeen nei eg fæ bara sama svar!
Sérlegt!!

En massíft skemmtilegt kvöld samt sem áður-saknaði þess samt frekar að heyra ekki Only girl in the world!

Ég legg til að Stöð 2 sýni The Hangover alltaf á nýárskvöld-þegar helmingur þjóðarinnar er að díla við meeeega þynnku! Flestir þeir sem ég þekki voru ógeðslega þunnir á nýárs til dæmis...og sögurnar sem maður er buinn að heyra siðan á gamlárs-OMG! En ekki orð um það meir!

En áramótaheitin mín:hugsa um heilsuna og losna við þetta súmóglímukappa lúkk fara í fleiri skemmtistaðasleiki (skemmtistaðasleikir eru mjög svo vanmetin skemmtum!) sýna ábyrgð í fjármálum og verða koffí tó go týpan! whooop!

Saturday, January 01, 2011



Klárlega eitt flottasta stelpulagið sem er í spilun í dag!:P

Saknaði þess samt frekar að heyra það ekki á Thorvaldsen í gærkvöldi-en meira um massíft djamm á gamlárs síðar!

Og já er ekki við hæfi að segja gleðilegt ár:D