Saturday, January 29, 2011

Ég veit ekki hvað það er langt síðan að tónlistarmynd virkilega hreyfði við manni en það er alla vega orðið mjög langt síðan. Flest tónlistarmyndbönd alla vega síðustu 10 árin hafa snúið um það að söngkonur (sem sumar hverjar hafa mikla hæfileika) eru hálf naktar dillandi bossanum í myndavélina ef að þetta er karlkyns listamaður þá er hann full klæddur með bling og hálf naktar konur i kringum sig og yfirleitt er textinn jafnvel um konur. En um síðustu helgi var ég eitthvað á youtube að skoða eins og eg geri frekar oft og fann þar myndbandið við nýja lagið frá Pink sem heitur Fokking Perfect. Fallegt lag með falleg skilaboð til ungra stúlkna um að gera kannski ekki lítið úr sjálfri sér endalaust eins og við gerum svo oft og þar er eg enginn undantekning eg hef eytt mörgum klukkustundum fyrir framan spegilinn og rakkað sjálfa mig niður fyrir að vera svona eða hinsegin of feit og með alla þessa týpisku konu komplexa. Og eg á það enn þann dag i dag til að horfa á sjálfa mig í spegli og sjá þar feitu og ljótu týpuna-en sem betur fer hefur þeim stundum fækkað! Með því að fara og taka sjálfa mig á í maí 2009 sem er eins konar vendipunktur í mínu lífi þvi fram að þeim tíma hafði eg einhvern vegin ekkert sjálfstraust enga sjálfsvirðingu var veeeel yfir 100 kíló og þar fram eftir götunum! Ég var bara á stað í minu lífi sem var alls ekki góður og mig langar aldrei og þá meina eg ALDREI á þann stað aftur! Og eg hef lika lært það nuna að ég verð að hreyfa mig til þess að mer liði vel. Ég komst ekki í ræktina í viku um daginn ut af einhverju ógeðslegu túrveseni (af hverju í andskotanum geta karlmenn ekki farið á fokking túr?!) og var orðin mega pirruð og þurfti að losa um eitthvað. Síðan komst eg í Body pump og omg eg held að í einum tima hafi losnað um þvilika gleði! Og mer leið svo vel á eftir! Þannig að ég hef bara lært það að til þess að mer liði vel þarf eg að hreyfa mig reglulega borða hollt (þarf aðeins að vinna í þvi betur en það kemur ) brosa og vera jákvæð! Ég lét það reyndar ut ur mer um daginn við vinkonu mina að ég væri megabeib en stefnan væri sett á það að verða ennþá meira megabeib:P (ego much?) Ég má kannski alveg vera grennri og allt það en eg er sem betur fer hætt að rífa mig niður fyrir það að vera of feit eða svona eða hin segin! Sem er framför! Síðan er það kannski það mikilvægasta er að ég er nuna með sjálfstraust sem eg hafði alls ekki áður! Og ef maður hefur ekki sjálfstraust þá gerir maður held eg ekki mikið!



Stelpur hættum að tala okkur sjálfar niður og vera vondar við okkur sjálfar-okkur skjátlast held eg voða voða oft!

Djöfull elska eg þetta lag!

Wednesday, January 26, 2011

Ég er algjör sokker fyrir fallegum ástarsögum og hér er ein slík:

Bar upp bónorðið í vitlaust númer.

Díönu Potts, fjörutíu og fjögurra ára húsmóður í bænum Gateshead fékk heldur betur skemmtilega spurningu þegar hún hlustaði á talhólfið í símanum sínum á dögunum. Breskur hermaður í Afganistan las inn skilaboð til hennar þar sem hann bað hana um að giftast sér.

Það var samt eitt vandamál. Hún þekkti engan breskan hermann í Afganistan og auk þess er hún gift þriggja barna móðir.

„Ég elska þig svo mikið, ég elska þig af öllu hjarta og ég ætlaði að spyrja þig, þú þarft ekki að svara, augljóslega geturðu það ekki, en viltu giftast mér?" Svona hljómuðu skilaboðin til Díönu þegar hún hlustaði á talhólfið í símanum sínum eftir að hún náði ekki að svara í hann einn daginn.

Díana segir við breska fjölmiðla að hún hafi áttað sig á því að hermaðurinn var að tala úr símaklefa því símtalið hafi verið mjög óskýrt. „Ég var í sjokki, og þurfti að hlusta á það aftur til að átta mig á þessu. Ég held að hann hafi slegið inn vitlaust númer og að símanúmer kærustu hans sé líkt mínu," segir Díana.

Stúlkan sem hermaðurinn ávarpaði heitir Samantha. Hann tjáði henni einnig að hann verði eflaust í Afganistan í þrjá mánuði í viðbót. Þá er kærasta hermannsins þunguð, af skilaboðum hans að dæma. „Ég get ekki beðið eftir því þegar við eignumst barnið okkar, litla hermanninn. Ég mun gera allt sem ég get til að vernda þig og barnið og elska ykkur af öllu hjarta."

Díana sendi breskum fjölmiðlum tölvupóst til að fá hjálp við að finna einhvern sem þekkir rödd hermannsins eða kærustu hans, Samönthu. „Við verðum að finna hana," segir Díana.

Samantha er ekki komin í leitirnar, en nú bara að bíða og sjá, hvort að Samantha gefi sig ekki fram.


O my god hvað ég vona að þessi Samantha finnist!

Annars er eg frekar yfirborðskenns í augnablikinu-var í strípum í dag og er kreizí ljóshærð og geri ekkert annað en að hlusta á píkupopp!

Monday, January 24, 2011

Ég er svo stressuð að það er ekki sniðugt! Og nei eg er ekki að fara í próf eða á deit eða neitt þannig! Ég er að fara að horfa á handboltaleik!! Þetta er ekki sniðugt!! En ÁFRAM ÍSLAND!!

Wednesday, January 19, 2011



Svona stelpulög eru alltaf hressandi!;)

Ég var að sjá það að ég á 3855 ólesna pósta á hotmailinu mínu-hvort á ég að eyða þeim þegar ég er komin upp í 4000 ólesna pósta eða þegar þeir verða orðnir 5000? Og já mest af þessum póstum er frá facebook!

Friday, January 14, 2011

Ég er búin að setja saman sérlegan BA playlista sem verður notaður til þess að halda geðheilsu minni réttu megin við strikið. Þessi playlisti inniheldur rúmlega 4 tíma af eðal tónlist en á playlistanum má meðal annars finna lög eins og

Hurts-Wonderful life
Florence and the machine-Dog days are over
Robert Tepper-There is no easy way out
Kings of leon-Sex on fire
Muse-Plug in baby
Stone temple pilot-Interstate love song
Massive Attack-Teardrops
Creed-One
Páll Óskar-Gördjöss
Thomas Holm-Nitten-lag sem hreinlega festist á hausnum á manni!
Eric Clapton-Change the world
Lady Gaga-Alejandro
Pink floyd-Wish you were here
Snow patrol-Run
Robbie Williams
...ásamt fleira eðal stöffi sem eg á eftir að bæta við;)

En hérna er það viðeigandi að vera með lag sem heitir Love game á BA playlistanum þegar BA er um nauðganir?

Veit ekki hvort að ég geti mælt með próteindrykknum frá Hleðslu-Hámar er svo mikið betri

Og já-ÁFRAM ÍSLAND!!

Monday, January 10, 2011

Síðasta önnin mín í háskóla er formlega hafin og hóst með því að rekast á Ásgeir Kolbeins þegar eg var að labba inn í Gimli í morgunn! Hmm ætti að gera þetta að hefð í háskólanum að Ásgeir Kolbeins taki á móti nemendum í HÍ við upphaf hverjar annarÐ Veit það samt ekki...

Sem sagt síðasta önninn byrjuð sem þýðir ritgerðir verkefni hópvinna framsögur heimildaleit tölvutímar glósur lesstofulíf Bókhlaðan´BA vera maaaassa dugleg í ræktinni sjá um heimili hitta vinina reyna að eiga sér líf-eða á eg að útiloka möguleikann á lífi strax?-vera þessi svokallaða ofurkona sem lítur alltaf massa vel út og er með heimilið alveg tipp topp! Ég er alla vega að spá í að fá mér dverg til þess að sjá um heimilið svona þegaar mesta geðveikin skellur á! Eru dvergar ekki annars tilvaldir í það? Ég er alla vega viss um að það eru dvergar heima hjá þessum súperkonum-en markmiðið er alla vega að reyna að vera þessi ofurkona. Kannski líka með smá hjálp frá Dömusiðum.

ATH! Þeir sem halda það að ég sé að gera lítið úr dvergum ættu að lesa þessa færslu aftur yfir og hafa það í huga að það kemur úr hörðustu átt að ég sé að gera eitthvað grín að dvergum-semí dvergurinn sjálfur!

Monday, January 03, 2011

Góða kvöldið og gleðilegt árið-aftur! En já eins og hamborgarsteikin og hangikjötið er nú dásamlega gott þá verð eg að viðurkenna þaðað ég er eiginlega fegin að þessum sko mega átseasoni með allt allt of mörgum nammidögum sé að vera búin og coming up svona fyrir utan mest kreizi önn allra tíma í skólanum með BA og öllum pakkanum er að koma sér í form (æjji eg minni svoldið á súmóglímu kappa akkúrat þessa stundina!) og verða einhver útgáfa af megabeibi-eða allavega reyna það!

Gamlárs var tekin í tveimur pörtum (ég er að verða 25 eftir nokkra mánuði og gamlárs var meira hardcore en nokkru sinni fyrr-HJÁLP!) að þessu sinni. Fimmtudagskvöldið var tekið í Hveragerði með stelpunum þar sem að var spilað ÉTIÐ og kjaftað. Hvergerðingar eru með dansleik alltaf einu sinni á ári sem að nefnist Sölvaball (sem er væntanlega nefnt eftir einhverjum Sölva...) og eg get merkt við þetta sérlega sölvaball á to do listanum mínum! Þetta var spes. Ekki svo mikið af fólki ekki beint dansvænasta tónlistin og fulllir hvergerðingar...jeiiiij! En okei þetta var fínt gott að annað kvöldið var tekið án þessa að standa í rööööö-en nánar af því síðar! En eg ætlaði að fara heim klukkan hálf 3 en þegar maður á yndislegar vinkonur sem að tala kannski svoldið mikið þá getur maður lent í því að koma heim klukkann hálf fimm! True story!

En já svo var kominn síðasti dagur ársins sem að leið eins og hefðbundin gamlárs með því að það var ÉTIÐ! Omg eg fékk sennilega máltíð ársins. Mmmm! Enda var ÉTIÐ í samræmi við það! Svo tók við brenna hjá þeim sem ákvaðu að vera ekki mega píjur og sitja heima með maskara og krullur-sem sagt eg fór ekki á brennuna en ég át desertinn. En ekki hvað og það með bestu list! Skaupið var heeeeelvíti fín Ágústa Eva átti stórleik þegar hun söng lokalagið sem að gaf manni smá von. En sú von hvarf reyndar um leið og maður fór út til þess að kveðja árið með mega flugeldasýningu en váááá hvað var kaaaalt! Enda var facebook statusinn rétt eftir miðnætti Ágústa Arna þarf eitthvað heitt í kroppinn! Og ég á alveg facebook vini sem að kommentuðu á þennan sérlega status minn og svurðu hvort mig vantaði eitthvað sem var alls ekki skylt við Kakó-uu bless!

En já nú var komið að því að breyta sér í sérlega partýpíju og halda á vits mohitos og góðrar tónlistar í Hvítahúsinu. En! Fyrir utan fór að renna á okkur alveg 2 grímur (mig Binnu og Sheilu-í stafrófsröð!) og við sjáum það fyrir okkur að það stefndi allt í að við yrðum göngugrindartýpurnar á skímóballi-einmiiiiitt! Þannig að það var tekin ákvörðum um að bruuuuna á vits mohito og góðrar tónlistar á 101. En það sem við vissum ekki að það yrði biðröð og þá meina ég BIÐRÖÐ fyrir utan Thorvaldsen! Og það alveg heill hálftími og það var eeeeenþá jafn kalt og fyrr um kvöldið *brr* En inn á staðinn komumst við og losnuðum við að láta afþýða okkur. Þannig að þá var um að gera að skella sér á dansgólfið og þar eiginlega á sér vandræðalegt móment og omg hvað það er samt sem áður frekar fyndið!:

Sem sagt mohito og góð tónlist var það sem að var málið þetta kvöld og við að sjáæfsögðu skelltum okkur á barinn til þess að fá okkur mohito-en ekki hvað:D Við erum komnar á dansgóldið og mér fannst vera komin timi til þess að skála við Binnu þannig að ég lyfti upp glaasinu minu og rétti það í áttina að Binnu

Ég: SKÁL!!
Binna kemur að mer og öskrar i eyrað á mér: ÁGÚSTA ÞETTA ER GLASIÐ ÞITT!!
Uuuu tilraun tvö
Ég: SKÁL!!
Binna kemur aftur upp að mér og öskrar á mig eins og hún fengi borgað fyrir það: ÁGÚSTA ÞETTA ER GLASIÐ ÞITT!!
Ég var svona að pæla í því að taka fram símann minn og skrifa hreinlega skál en ákvað að gera tilraun 3 eeeeeen nei eg fæ bara sama svar!
Sérlegt!!

En massíft skemmtilegt kvöld samt sem áður-saknaði þess samt frekar að heyra ekki Only girl in the world!

Ég legg til að Stöð 2 sýni The Hangover alltaf á nýárskvöld-þegar helmingur þjóðarinnar er að díla við meeeega þynnku! Flestir þeir sem ég þekki voru ógeðslega þunnir á nýárs til dæmis...og sögurnar sem maður er buinn að heyra siðan á gamlárs-OMG! En ekki orð um það meir!

En áramótaheitin mín:hugsa um heilsuna og losna við þetta súmóglímukappa lúkk fara í fleiri skemmtistaðasleiki (skemmtistaðasleikir eru mjög svo vanmetin skemmtum!) sýna ábyrgð í fjármálum og verða koffí tó go týpan! whooop!

Saturday, January 01, 2011



Klárlega eitt flottasta stelpulagið sem er í spilun í dag!:P

Saknaði þess samt frekar að heyra það ekki á Thorvaldsen í gærkvöldi-en meira um massíft djamm á gamlárs síðar!

Og já er ekki við hæfi að segja gleðilegt ár:D